Tekur við af læriföður sínum Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2025 07:33 Aðalsteinn Jóhann Friðriksson og Dóra Sif Sigtryggsdóttir, formaður stjórnar Þórs/KA, ásamt fleiri stjórnarmönnum og leikmönnum. Þór/KA Eftir að hafa gert frábæra hluti með Völsung í 1. deild karla í fótbolta í sumar er Aðalsteinn Jóhann Friðriksson orðinn þjálfari kvennaliðs Þórs/KA í Bestu deildinni.
Aðalsteinn Jóhann var kynntur til leiks hjá Þór/KA í gær og skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2028. Hann tekur við af sveitunga sínum, Jóhanni Kristni Gunnarssyni sem tekinn er við Þrótti, en báðir eru þeir frá Húsavík. Raunar er það svo að Aðalsteinn Jóhann lék í mörg ár undir stjórn Jóhanns Kristins hjá Völsungi og þeir þekkjast afar vel. Eftir að Jóhann Kristinn hætti var Aðalsteinn Jóhann fyrsti kostur Akureyringa og gengu viðræður vel fyrir sig. Hann tekur við liði sem endaði í efsta sæti neðri hluta Bestu deildarinnar, eða í 7. sæti. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson er nýr þjálfari Þórs/KA.Þór/KA „Ég tel mig vera að taka við góðu búi af forvera mínum og hlakka mikið til að byrja að vinna með liðinu. Það verða alltaf einhverjar breytingar milli ára og eins þegar nýr þjálfari tekur við skútunni. En ég hef miklar væntingar til þess að þetta verði bæði skemmtilegt og gjöfult nýtt samband,“ segir Aðalsteinn Jóhann á vef Þórs/KA. Alltaf fundist heillandi ára yfir Þór/KA Hann veit vel hvað hann er að fara út í etir náið samstarf með Þór/KA þegar hann var þjálfari kvennaliðs Völsungs. „Mér hefur hefur alltaf fundist heillandi ára yfir Þór/KA. Stelpurnar eru metnaðarfullar og hafa búið til gott æfingaumhverfi sem verður gaman að stíga inn í og spennandi að vera þátttakandi í því starfi.“ segir Aðalsteinn Jóhann. Aðalsteinn Jóhann er aðeins 34 ára gamall en hefur þrátt fyrir það þjálfað bæði karla- og kvennalið Völsungs undanfarin ár, kvennaliðið í sex ár og karlaliðið í þrjú, með eftirtektarverðum árangri. Meðal annars kom hann karlaliði Völsungs upp í næstefstu deild, Lengjudeildina, og tryggði sæti liðsins þar með öruggum hætti á nýafstaðinni leiktíð. Hann á jafnframt að baki langan feril og hefur unnið farsælt starf sem þjálfari í yngri flokkum Völsungs. Þá er hann einnig næstleikjahæstur í sögu Völsungs, en hann var leikmaður félagsins frá 17 ára aldri, 2008-2022.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira