„Kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni“ Sindri Sverrisson skrifar 23. október 2025 08:31 Ólafur Ingi Skúlason byrjar þjálfaratíð sína hjá Breiðabliki á Evrópuslag. Sýn Sport „Það er búið að vera nóg að gera en þetta er búið að vera mjög skemmtilegt,“ segir Ólafur Ingi Skúlason sem hefur þurft að hafa hraðar hendur sem nýr þjálfari Breiðabliks. Liðið tekur nefnilega á móti finnsku meisturunum í KuPS á Laugardalsvelli í dag, í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta.
Ólafur Ingi tók við Blikum á mánudaginn, eftir að Halldór Árnason var rekinn, og byrjar svo sannarlega á stóru verkefni. Viðtal við hann má sjá hér að neðan. Leikurinn við KuPS hefst klukkan 16:45 og er í beinni útsendingu á Sýn Sport. Klippa: Ólafur Ingi byrjar á stóru verkefni Ólafur Ingi er spenntur og ánægður með fyrstu dagana hjá Breiðabliki: „Hópurinn hefur tekið mér frábærlega. Þetta var eflaust sjokk fyrir marga, eðlilega, en ég hef ekkert fundið fyrir því. Ég hef bara fundið ótrúlega samstöðu innan hópsins og það hefur verið tekið vel á móti mér af þeim og öðrum innan Breiðabliks. Það er virkilega ánægjulegt og gefur manni aukið búst.“ Breiðablik hefur aldrei unnið leik í aðalkeppni Sambandsdeildarinnar en er nú með í keppninni í annað sinn. Möguleikinn er til staðar í dag: „Þetta verður hörkuleikur, finnskir meistarar sem við erum að mæta. Góðir og vel drillaðir. En við erum galvaskir samt sem áður. Það er kominn tími á sigur í Sambandsdeildinni. Við erum staðráðnir í að gera eins vel og hægt er, og ef við verðum á toppi okkar leiks þá eigum við góða möguleika,“ sagði Ólafur Ingi sem var með skýr skilaboð til stuðningsmanna: „Það þarf að klæða sig vel. Ískalt. En völlurinn er frábær sem er alveg geggjað. Við erum auðvitað ekki alveg á heimavelli. Við hefðum viljað geta gert það og verið á gervigrasinu en völlurinn hérna er frábær og það eru allir mjög spenntir.“
Sambandsdeild Evrópu Breiðablik Mest lesið Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti „Niðurlægði mig fyrir framan allan heiminn“ Enski boltinn Boða til boxveislu þó það sé enn bannað Sport Ísland enn eina liðið sem hefur unnið Ítalíu Körfubolti Bannar leikmanni sínum að lyfta lóðum Enski boltinn Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Fleiri fréttir Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sjá meira