Norris á ráspól og forysta Piastri í hættu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. október 2025 22:15 Lando Norris ræsri fremstur í mexíkóska kappakstrinum á morgun. Hector Vivas/Getty Images Lando Norris mun ræsa fyrstur þegar mexíkóski kappaksturinn í Formúlu 1 fer af stað á morgun. Liðsfélagi hans hjá McLaren og efsti maður heimsmeistaramóts ökuþóra, Oscar Piastri, ræsir aðeins áttundi.
Norris keyrði algjörlega frábæran hring í lokahluta tímatökunnar í Mexíkó í kvöld þegar hann kom í mark á tímanum 1:15,586. Hann var 0,262 sekúndum hraðari en Cherles Leclerc á Ferrari, sem ræsir annar. Liðsfélagi Leclerc hjá Ferrari, sjöfaldi heimsmeistarinn Lewis Hamilton, varð þriðji í tímatökunum, 0,352 sekúndum hægari en Norris. George Russell á Mercedes ræsir fjórði eftir tímatökurnar í kvöld og ríkjandi heimsmeistarinn Max Verstappen, sem er að elta McLaren-mennina Norris og Piastri í baráttunni um heimsmeistaratitilinn, ræsir fimmti. Piastri átti hins vegar ekki sinn besta dag í Mexíkó í kvöld og hann ræsir aðeins áttundi þegar kappaksturinn fer af stað annað kvöld. Piastri er efstur í heimsmeistaramóti ökuþóra með 346 stig þegar fimm keppnir eru eftir, 14 stigum meira en Norris sem er annar.
Akstursíþróttir Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Skoraði nær helming marka ÍR í tapi gegn KA Handbolti Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Fótbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Enski boltinn „Spiluðum virkilega vel í tuttugu mínútur“ Körfubolti Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Verkfalli Ronaldo lokið Fótbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira