Náðu myndum af háhyrningum að velta hvítháfum og éta úr þeim lifrina Samúel Karl Ólason skrifar 4. nóvember 2025 18:48 Nokkrar myndir sem vísindamennirnir birtu með rannsókn þeirra um árásir háhyrninga við strendur Mexíkó á hákarla. Jesús Erick Higuera Rivas Vísindamönnum í Mexíkó hefur nokkrum sinnum tekist að taka upp hjörð háhyrninga ráðast á og drepa hvíthákarla. Háhyrningarnir éta svo orkuríka lifur hákarlanna og lítið sem ekkert annað.
Áður hefur sambærileg hegðun háhyrninga sést undan ströndum Suður-Afríku, Ástralíu og Kaliforníu en þetta ku vera í fyrsta sinn sem hún er fest á filmu í Mexíkó, samkvæmt rannsókn sem birt var á mánudaginn. Samkvæmt frétt CNN hafa umræddir vísindamenn fylgst með háhyrningum við Mexíkó í nokkur ár. Tvær árásir einnar hjarðar á tvo hvíthákarla voru fangaðar á filmu í ágúst 2020, með nokkurra mínútna millibili. Þá sást önnur í ágúst 2022. Í tveimur af árásunum tókst háhyrningunum að snúa hákörlunum við, svo magi þeirra sneri upp á við, og þannig stöðva þá. Háhyrningarnir þurftu einnig að passa sig að fara ekki of nærri kjafti hákarlanna. Vísindamennirnir birtu myndband af háhyrningunum á Instagram í dag. Hægt er að horfa á það hér að neðan. Þar neðar má svo sjá önnur myndbönd frá vísindamönnunum. Eitt er af háhyrningum éta ungan hnúfubak sem þeir drápu. Hitt sýnir hvernig háhyrningar sýndu vísindamönnum skjaldböku sem þeir höfðu veitt. View this post on Instagram A post shared by ORCAS MEXICO (@orcasmexico) View this post on Instagram A post shared by Pelayo Salinas (@pelayosalinas) View this post on Instagram A post shared by Katy Ayres (@drkatyayres)
Mexíkó Dýr Hvalir Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Fleiri fréttir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Sjá meira