Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 7. nóvember 2025 23:41 Talið er að mennirnir hafi verið að útbúa sprengjur. Getty Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að skipuleggja hryðjuverk fyrir hönd hryðjuverkasamtaka sem aðhyllast hægri öfgahyggju en talsvert magn sprengiefni fannst á heimili eins þeirra.
Karolis Peckauskas frá Drogheda á Írlandi og Garrett Pollock frá Annalong á Norður-Írlandi voru handteknir hvor sín megin við landamærin eftir umfangsmikla samstarfsrannsókn lögreglunnar á Írlandi og lögreglunnar á Norður-Írlandi. Samkvæmt umfjöllun Guardian hafði lögreglan undir höndum myndskeið þar sem mennirnir tveir lýstu yfir ábyrgð á árás á mosku í Galway á vesturströnd Írlands og hótuðu frekari árásum á húsakynni flóttafólks á Írlandi. Í myndbandinu stóðu mennirnir tveir fyrir framan írskan fána með lambhúshettur fyrir andliti. Þar fluttu þeir það sem lýst er sem æfingaryfirlýsingu fyrir yfirvofandi hryðjuverk. Þeir vöruðu við því að allir þeir sem reyndu að standa í vegi þeirra yrðu skotmörk. Þá höfðu þeir einnig eins konar stefnuyfirlýsingu í fórum sínum. Sprengiefnið sem fannst á heimili Pollock er talið hafa átt að nota til að setja saman heimatilbúnar sprengjur. Ásamt efninu fundust einnig aðrir íhlutir slíkra sprengja. Samkvæmt írsku lögreglunni stóð til að fremja hryðjuverk fyrir hönd öfgahægri hryðjuverkasamtaka sem hafa þó hvergi verið nefnd á nafn.
Írland Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Fleiri fréttir Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Sjá meira