Forsetinn fyrrverandi í gæsluvarðhald af ótta við flótta Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. nóvember 2025 15:35 Jair Bolsonaro fyrir utan heimili sitt í dag. AP Jair Bolsonaro fyrrverandi forseti Brasilíu var í dag færður í gæsluvarðhald. Hann hefur sætt stofufangelsi undanfarna mánuði á meðan áfrýjunarferli máls hans fyrir hæstarétti Brasilíu stendur yfir. Hann hefur verið sakfelldur fyrir að skipuleggja valdarán.
Alexandre de Moraes, forseti hæstaréttar Brasilíu, fyrirskipaði gæsluvarðhald yfir forsetanum fyrrverandi af ótta við að samstöðumótmæli með forsetanum hefðu áhrif á getu lögreglunnar til að fylgjast með því að hann brjóti ekki skilyrði stofufangelsis síns. Dómarinn hafði einnig orð á því að ummerki um spjöll á ökklabandi Bolsonaro. „Óróinn sem ólögleg samkoma stuðningsmanna sakborningsins ylli eykur verulega áhættuna sem fylgir stofufangelsi og öðrum varúðarráðstöfunum og gæti gert honum kleift að flýja,“ skrifaði De Moraes í úrskurði sínum í dag samkvæmt fréttaveitunni Reuters. Hann vísaði sömuleiðis til sönnunargagna um að Bolsonaro hefði áður íhugað að leita hælis í sendiráði Argentínu í Brasilíuborg. Einn sona hans og aðrir nánir bandamenn hafa þegar flúið Brasilíu til að komast undan lögsögu dómstóla landsins. Lögmenn Bolsonaro mótmæla úrskurðinum og hyggjast áfrýja honum. Í september síðastliðnum var Jair Bolsonaro, sem gengdi embætti forseta Brasilíu á árunum 2019 til 2023, dæmdur til 27 ára og þriggja mánaða fangelsisvistar. Hann var sakfelldur fyrir að hafa skipulagt tilraun til að hindra embættistöku Luiz Inacio Lula da Silva, núverandi forseta, sem bar sigur úr býtum í forsetakosningum árið 2022. Hann hefur sætt stofufangelsi síðastliðna mánuði vegna meintra tilrauna til að hindra framgang réttvísinnar í öðru máli gegn honum með því að hafa hvatt bandarísk stjórnvöld til að hafa áhrif á málaferlin. Flavio Bolsonaro, sonur forsetans fyrrverandi og öldungadeildarþingmaður, brást við fréttunum með myndbandi á samfélagsmiðlum. Hann hvatti stuðningsmenn Bolsonaro til að safnast saman fyrir utan heimili forsetans fyrrverandi. „Ég býð ykkur að koma og berjast með okkur. Með styrk ykkar, styrk fólksins, snúum við vörn í sókn og björgum Brasilíu,“ sagði hann meðal annars.
Brasilía Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira