Með lögregluna á hælunum með fullan BMW af kókaíni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. nóvember 2025 09:02 Fólkið var handtekið við ónefnt bílaverkstæði við Gjáhellu þar sem þau virðast hafa ætlað að reyna að nálgast efnin sem falin voru í bílnum. Vísir/Vilhelm Tveir karlmenn og ein kona hafa verið ákærð fyrir innflutning á 5,7 kílóum af kókaíni sem falin voru í BMW-bíl sem ferðaðist frá Íslandi til Litáen og aftur til Íslands með flutningsskipi. Fólkið beið í fimm daga áður en það reyndi að nálgast efnin í bílnum.
Það var þann 30. apríl sem karl og kona keyptu BMW-bíl í gegnum fyrirtæki konunnar og fluttu út til Litáens nokkrum dögum síðar. Bíllinn var svo fluttur aftur til Íslands frá Hirtshals í Danmörku 10. júní og kom til hafnar í Þorlákshöfn þann 16. júní. Lögreglan virðist hafa haft veður af innflutningnum og fylgst með ferðum ákærðu. Karlmaðurinn sótti bílinn til tollstjóra að Vesturvör í Kópavogi þann 3. júlí og ók honum að bílastæði við Nettó við Seljabraut í Breiðholti. Þar stóð bíllinn til 6. júlí þegar maðurinn færði bílinn yfir á bílastæði við Mini Market við Drafnarfell í Breiðholti. Daginn eftir ók annar karlmaður bílnum að verkstæði við Gjáhellu í Hafnarfirði þar sem hann, síðar þann dag, hitti karlinn og konuna. Það var svo 8. júlí sem þau voru öll samankomin við verkstæðið á nýjan leik, bílnum var ekið inn og upp á bílalyftu þegar lögregla lét til skarar skríða og handtók öll þrjú. Fram kemur í ákærunni að fíkniefnin hafi fundist í drifskafti og grindarbitum bílsins þann 24. júní, áður en bíllinn var sóttur til tollstjóra, og svo þann 11. september eða mörgum vikum eftir að lagt var hald á hann. Héraðssaksóknari gerir kröfu um upptöku á efnunum og jafnframt BMW-bílnum og sex farsímum sem ákærðu notuðu við brotið. Málið verður til aðalmeðferðar við Héraðsdóm Reykjaness í desember.
Fíkniefnabrot Lögreglumál Ölfus Litáen Smygl Földu kókaín í BMW Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira