Handbolti

„Fannst stelpurnar frá­bærar í seinni hálf­leik“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Arnar Pétursson fær að líta gula spjaldið.
Arnar Pétursson fær að líta gula spjaldið. getty/Marijan Murat

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, var bæði svekktur og stoltur eftir eins marks tapið fyrir Serbíu, 27-26, í C-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld. Ísland fékk tækifæri til að jafna metin í lokasókn leiksins.

„Þetta er svekkjandi og grátlegt eftir hetjulega baráttu, sérstaklega hérna í seinni hálfleik, að fá ekki meira út úr þessu. Mér fannst við eiga það skilið. Mér fannst stelpurnar frábærar í seinni hálfleik og svara vel fyrir fyrri hálfleikinn,“ sagði Arnar við Ágúst Orra Arnarson eftir leikinn í kvöld.

Klippa: Arnar gerir upp tapið gegn Serbíu

Þegar tólf mínútur voru liðnar af seinni hálfleik var Ísland sjö mörkum undir, 24-17, en þá hrukku íslensku stelpurnar í gang, minnkuðu muninn og fengu tækifæri til að jafna.

„Mér fannst útgeislunin og hvernig þær báru sig. Við vorum undir en við vissum að Serbarnir eru með þungt lið, ofboðslega kröftugt og það dregur aðeins af þeim. Við vorum alveg meðvituð um að ef við næðum að halda okkur í hæfilegri fjarlægð gætum við gert áhlaup. Það stóðst og við fengum klárlega færin til að gera meira úr þessu,“ sagði Arnar.

„Ég er stoltur af þeim. Við fengum alveg ofboðslega mikið út úr þessu. Við erum að kljást við einn besta línumann seinustu ára [Dragönu Cvijic] og fórum fyrir vikið kannski aðeins of aftarlega á allt liðið en breyttum því í seinni hálfleik. Stelpurnar gerðu virkilega vel.“

Jafnræði var með liðunum framan af fyrri hálfleik en í stöðunni 9-9 skildu leiðir.

„Við fengum á okkur átján mörk í seinni hálfleik sem er dálítið mikið en þetta serbneska lið er feikilega sterkt. Ég þarf að skoða uppleggið,“ sagði Arnar.

„Auðvitað töluðum við mikið um hana á línunni og fyrir vikið urðu þessar ungu stelpur sem við erum með kannski passívar og breyttu út frá því sem þær hafa verið að gera mjög vel í síðustu leikjum, að taka þetta skref í snertinguna við andstæðinginn. Svo fóru þær að taka skrefið og þá breyttist leikurinn,“ bætti Arnar við.

Viðtalið við Arnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

„Mig langar mjög mikið að gráta“

Þórey Anna Ásgeirsdóttir var sár og svekkt eftir eins marks tap Íslands fyrir Serbíu, 27-26, á HM í handbolta í kvöld. Hún fékk tækifæri til að jafna í lokasókn Íslands en markvörður Serbíu varði skot hennar úr hægra horninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×