Viktor Bjarki heldur áfram að slá í gegn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. desember 2025 18:53 Viktor Bjarki Daðason er að standa sig frábærlega á sínu fyrsta tímabilið með FCK. Getty/Kristian Tuxen Ladegaard Berg FC Kaupmannahöfn er einu skrefi nær undanúrslitunum í danska bikarnum eftir 4-2 sigur á B-deildarliði Esbjerg á útivelli. Íslenski framherjinn Viktor Bjarki Daðason var allt í öllu í kvöld.
Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli FC Kaupmannahafnar í þarnæstu viku. Tveggja marka sigur er gott fararnesti fyrir hann. Viktor Bjarki hefur heldur betur slegið í gegn á síðustu vikum og í kvöld var hann með tvö mörk og eina stoðsendingu, kom með beinum hætti að þremur af fjórum mörkum síns liðs í bikarsigri. Viktor Bjarki kom FCK í 1-0 strax á sjöttu mínútu leiksins í kvöld. Markið skoraði hann með hægri fæti af stuttu færi eftir stoðsendingu frá Elias Achouri. @fc_kobenhavn Mohamed Elyounoussi kom FCK í 2-0 á 14. mínútu og á 35. mínútu launaði Viktor sendinguna frá Achouri. Achouri skoraði þá þriðja markið af stuttu færi eftir stoðsendingu frá Viktori Esbjerg minnkaði muninn á 42. mínútu með marki Muamer Brajanac. Viktor var ekki hættur og kom FCK í 4-1 á 72. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir hornspyrnu. Esbjerg minnkaði aftur muninn tveimur mínútum síðar með marki Peter Bjur. Viktor fékk að klára leikinn til að ná þrenunni en hún datt ekki inn að þessu sinni. Seinni leikur liðanna fer fram eftir ellefu daga eða 14. desember næstkomandi. Viktor Bjarki er nú kominn með fimm mörk og tvær stoðsendingar í ellefu leikjum í öllum keppnum á sínu fyrsta tímabili í aðalliði FCK en hann er aðeins sautján ára gamall. Í mörgum af þessum leikjum hefur hann aðeins spilað stutt eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Þetta var annað og þriðja bikarmark hans en hann hefur einnig skorað tvö mörk í Meistaradeildinni.
Danski boltinn Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira