Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Sindri Sverrisson skrifar 4. desember 2025 09:41 Þorlákur Árnason er hættur eftir frábært tímabil með ÍBV. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Ástæðan fyrir því að Þorlákur Árnason er hættur sem þjálfari karlaliðs ÍBV í fótbolta er sú að fyrirliði liðsins, Alex Freyr Hilmarsson, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar.
Þetta staðfesti Þorlákur í samtali við Vísi í dag eftir að ÍBV tilkynnti óvænt í gærkvöld að hann hefði sagt upp störfum. „Ég fór í gegnum allar þær aðstæður sem gætu komið upp og það er alveg sama hvaða hugmynd ég setti í huga mér, ég sá það ekki ganga,“ sagði Þorlákur. Þorlákur hafði gert frábæra hluti með lið ÍBV á síðustu leiktíð en honum leist einfaldlega engan veginn á þá ráðstöfun að leikmaður liðsins yrði framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar, með öllu sem því fylgir. „Þessi hugmynd kom upp og mér var bent á hana, og mín fyrstu viðbrögð voru mjög skýr. Ég var ekki hrifinn af þessu. Svo heyrði ég að menn vildu reyna á þetta og þá bara bakkaði maður út úr þessu, og leyfði Alex og þeim sem ætla að ráða hann í vinnu að klára það. Það er ekki mitt að stoppa það. Félagið vill hámarka krafta einstaklings sem hefur frábæra sýn á fótbolta. Ég hef fullan skilning á því en þarf á sama tíma að hugsa um liðið sem ég er að þjálfa,“ sagði Þorlákur. „Ég komst alltaf að sömu niðurstöðu, þó ég hefði viljað óska þess á köflum að ég væri öðruvísi og þætti þetta bara allt í lagi. Það verður einhver sem hefur trú á þessum breytingum að vera við stjórnvölinn,“ bætti hann við. Nú er ljóst að Eyjamenn verða að hafa hraðar hendur við að finna nýjan þjálfara, enda undirbúningur fyrir næstu leiktíð hafinn. Sjálfur ætlar Þorlákur svo að taka sér tíma í að ákveða sitt næsta skref. „Ég var búinn að lofa mér í frí með konunni og stend við það, og verð vonandi ekki bara í símanum. Í kjölfarið reyni ég svo að finna vinnu,“ sagði Þorlákur.
Besta deild karla ÍBV Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti Fleiri fréttir Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira