Afrituðu viðkvæmar heilsufarsupplýsingar úr kerfinu Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 12. desember 2025 20:18 Elliheimilið Grund við Hringbraut. Vísir/Vilhelm Óprúttnum aðilum, sem gerðu tölvuárás á kerfi Grundarheimila í vikunni, tókst að afrita viðkvæmar persónuupplýsingar um skjólstæðinga áður en árásin uppgötvaðist. Meðal þeirra gagna voru upplýsingar um heilsufar, sem tengjast umönnun og veittri heilbrigðisþjónustu á heimilunum.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá stofnuninni. Tölvuárásin var gerð á kerfi Grundarheimila á miðvikudag. Árásin fólst í því að tölvuþrjótar brutust inn á netþjóna og komust þannig inn í kerfi þar sem finna má upplýsingar um skjólstæðinga, íbúa, aðstandendur og starfsfólk Grundarheimilanna. Þrjótarnir ekki hótað birtingu Í tilkynningu segir að rannsókn hafi leitt í ljós að áður en tölvuárásin uppgötvaðist, hafi tölvuþrjótunum tekist að afrita hluta af þeim persónuupplýsingum sem finna mátti í kerfum heimilanna, sem sagt heilsufarsupplýsingar sem tengjast umönnun og veittri heilbrigðisþjónustu á heimilunum. „Ekkert bendir til þess að þessar upplýsingar hafi verið birtar og tölvuþrjótarnir hafa ekki hótað slíkri birtingu. Rannsókn árásarinnar stendur enn yfir með aðstoð færustu sérfræðinga landsins á þessu sviði,“ segir í tilkynningu. Þá segir að lokað hafi verið fyrir aðgang tölvuþrjótanna og ljóst þyki að engum gögnum eða upplýsingum hefur verið eytt eða þeim breytt. Heimilin hafi áfram fullan aðgang að öllum upplýsingum sem kerfin innihalda og árásin hefur því takmörkuð áhrif haft á þá þjónustu sem heimilin veita íbúum og skjólstæðingum. Í ljósi viðkvæms eðlis upplýsinganna séu skjólstæðingar, íbúar, aðstandendur og starfsmenn Grundar hvattir til að vera á varðbergi gagnvart mögulegri misnotkun á upplýsingunum af hálfu tölvuþrjótanna. Vakni grunur um slíka misnotkun skuli gæta fyllstu varúðar í samskiptum, bregðast ekki við heldur tilkynna til CERT-IS netöryggissveitarinnar. Þá er áréttað að Grundarheimilin muni ekki senda út neina pósta að fyrra bragði þar sem fólk er beðið um að senda upplýsingar eða ýta á hlekki. Tilkynnt hefur verið um árásina til Persónuverndar, Landlæknis og CERT-IS netöryggissveitarinnar í samræmi við það sem áskilið er í lögum og starfsleyfi heimilanna. Þá er verið að undirbúa kæru til lögreglu. „Grundarheimilin munu ræða við alla íbúa og hafa verið sendar sérstakar tilkynningar til starfsfólks, skjólstæðinga, íbúa og aðstandenda eftir því sem mögulegt er. Þá hefur fólki verið boðið að hafa samband beint með spurningar sem kunna að vakna.“
Tölvuárásir Hjúkrunarheimili Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira