Sport

Afi á fimmtudagsaldri spilar NFL leik í dag

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Philip Rivers hefur ekki spilað síðan í janúar 2021.
Philip Rivers hefur ekki spilað síðan í janúar 2021.

Tæpum fimm árum eftir að hafa lagt skóna á hilluna mun hinn 44 ára gamli Philip Rivers, tíu barna faðir sem á eitt barnabarn, reima á sig takkaskóna á ný í kvöld og spila NFL leik.

ESPN greinir frá því að Rivers verði í byrjunarliðinu og muni leikstýra Indianapolis Colts í leiknum gegn Seattle Seahawks í kvöld.

Colts eru í mikilli meiðslakrísu. Aðalstjórnandinn Daniel Jones er úr leik það sem eftir er tímabilsins vegna hásinarmeiðsla og varaleikstjórnandinn Riley Leonard glímir við hnémeiðsli. Stutt er eftir af tímabilinu og lokað er fyrir leikmannaskipti milli liða.

Neyðarlausnin var þá að leita til goðsagnarinnar Rivers, sem er í sjötta sæti yfir flestar snertimarkasendingar í sögu deildarinnar og hefði væntanlega verið vígður inn í frægðarhöllina á næsta ári, en þarf nú að bíða fimm ár til viðbótar.

Upphaflega var Rivers bara settur í æfingaliðið hjá Colts en var fljótt kallaður upp í aðalliðið. Á föstudaginn sagði þjálfari liðsins svo að hann myndi líklega byrja leikinn og nú herma heimildir ESPN að hann sé staðfestur í byrjunarliðinu. Sömuleiðis er greint frá því á samfélagsmiðlum NFL deildarinnar. 

„Æfingarnar hafa gengið nokkuð vel. Hann hefur auðvitað verið fjarverandi í fimm ár, þannig að hann þurfti aðeins að aðlagast aftur, en ég var hrifinn af því sem ég sá. Augljóslega er leikur aðeins öðruvísi en æfing, hraðinn er meiri og hann mun þurfa að venjast því á ný“ sagði þjálfarinn Shane Steichen einnig á föstudag.

Eiginkonan hefur áhyggjur

Eiginkona Philip, menntaskólaástin Tiffany Rivers, hefur áhyggjur af karlinum og þeirri miklu meiðslahættu sem fylgir því að spila í NFL, einni mest líkamlega krefjandi íþróttadeild heims.

Rivers fjölskyldan er rík.

Saman eiga þau tíu börn á aldrinum 2 til 23 ára og eitt barnabarn. Rivers hefur verið þjálfari menntaskólaliðs sona sinna síðan hann hætti, en fékk frí frá þeim störfum til að snúa aftur í NFL deildina.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×