Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. desember 2025 16:28 Venjulega er sjúkrabílum ekið inn í þetta rými til að skila farþegum á bráðamóttöku. Rýmið var nýtt til að einangra sjúklinga. Landspítali/Þorkell Þorkelsson Félag bráðalækna telur vistun sjúklinga í bílskúr bráðamóttökunnar vera kerfisbundið brot á mannréttindum þeirra. Það sé daglegt viðfangsefni að leysa öryggisógnir vegna plássleysis en vandamálið sé ekki bráðamóttakan sjálf heldur heilbrigðiskerfið í heild.
Á föstudag var greint frá því að vegna fjölda þeirra sem leituðu á bráðamóttöku Landspítalans þyrfti að vista sjúklinga í bílskúr sem er alla jafna nýttur fyrir sjúkrabíla. Í yfirlýsingu frá Félagi bráðalækna segir að þeir telji nauðsynlegt að upplýsa stjórnvöld og almenning um það grafalvarlega ástand sem ríki í bráðaþjónustu á Íslandi. Þar er vísað í rannsóknir sem sýna fram á að plássleysi á bráðamóttöku leiði til lengri sjúkrahúsdvalar og hærri dánartíðni. Félag bráðalækna bætist í hópinn með Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Læknafélagi Íslands sem hafa einnig gagnrýnt ráðstöfunina. „Það er orðið daglegt viðfangsefni í starfi okkar á bráðamóttöku að glíma við öryggisógnir í tengslum við alvarlegt plássleysi. Þrátt fyrir það er mikilvægt að undirstrika með skýrir að slíkar aðstæður geta aldrei talist eðlilegar á neinn hátt og eru alltaf óréttlætanleg brot á grundvallarréttindum sjúklinga,“ segir í yfirlýsingunni. Unnur Ósk Stefánsdóttir, formaður Félags bráðalækna segist hafa verið tilneydd til að tjá sig um málið eftir vistun sjúklinga í bílskúrnum fyrir helgi. Staðan hafi lengi verið afar slæm en hún náð nýjum hápunkti. „Við viljum ekki þurfa að skoða sjúklinga frammi á gangi og að þeir geti fengið tækifæri á að tjá sig við lækni þegar þeir eru bráðveikir ekki undir augum annarra. Við viljum ekki þurfa að afklæða og skoða fólk á ganginum heldur,“ segir hún. „Þetta er flókið vandamál sem við vitum að er flókið á stjórnsýslulegan hátt og margir hafa reynt að laga en þetta fer stöðugt versnandi. Það breytir engu hversu margir tjá sig eða hvað oft, það versnar bara stöðugt.“ Langvarandi kerfisbundinn vandi Á laugardag var búið að tæma bílskúrinn af sjúklingum en bráðalæknarnir segja að það sé einungis frumkvæði og aðlögunarhæfni yfirmanna og starfsfólks bráðamóttökunnar að þakka að hægt hafi verið að sinna þeim sem leita á bráðamóttökuna. Í viðtali á Vísi sagði Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðamóttöku Landspítalans, að hann ætti von á því að rýmið yrði nýtt aftur aukist aðflæði hratt. Félagið bendir á að í slíkum aðstæðum sé verið að brjóta grundvallarreglur um trúnað og rétt sjúklinga til einkalífs. „Félag bráðlækna lítur ekki á bílskúrslausnina sem einstaka frávik á tímum inflúensufaraldurs heldur langvarandi kerfisbundinn vanda sem stjórnvöld verða að axla ábyrgð á.“ Vandamálið sé ekki bráðamóttakan eða Landspítalinn heldur heilbrigðiskerfið sjálft sem sé komið af fótum fram og hafi ekki svigrúm til að takast á við árstíðabundnar sveiflur í umgangspestum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem álag á bráðamóttöku Landspítalans hefur verið tekið fyrir. Reglulega koma tilkynningar frá spítalanum þar sem fólk er beðið um að leita annað og í október var greint frá að það væru nánast tveir sjúklingar í hverju plássi. Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra, sagði fyrir rúmu ári síðan að það væri tímabært að stækka bráðamóttökuna. Fréttin hefur verið uppfærð.
Heilbrigðismál Landspítalinn Tengdar fréttir Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðamóttöku Landspítalans, segir stöðuna töluvert betri í dag en í gær þegar þurfti að vista sjúklinga sem leituðu á bráðamóttöku spítalans í bílageymslu spítalans. Hann segir alla þá 50 sem eru lagðir inn núna inni á deild og tuttugu á bið. 13. desember 2025 20:16 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira
Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráðamóttöku Landspítalans, segir stöðuna töluvert betri í dag en í gær þegar þurfti að vista sjúklinga sem leituðu á bráðamóttöku spítalans í bílageymslu spítalans. Hann segir alla þá 50 sem eru lagðir inn núna inni á deild og tuttugu á bið. 13. desember 2025 20:16