Setningar sem eiga skilið innrömmun Lestrarklefinn 17. desember 2025 12:57 Skáldsagan Frumbyrjur eftir Dag Hjartarson er tekin til umfjöllunar á menningarvefnum Lestrarklefinn. Nýjasta bók Dags Hjartarsonar er til umfjöllunar í Lestrarklefanum. Díana Sjöfn hefur þetta að segja um bókina.
Mér var gefin bók með þeim formerkjum að mér myndi örugglega þykja hún góð þar sem hún væri svolítið í anda Aðventu hans Gunnars Gunnarssonar, sem mér einmitt líkar mjög vel og les reglulega. Þessi tiltekna bók sem um ræðir er skáldsagan Frumbyrjur eftir Dag Hjartarson. Það eru vissulega ýmis líkindi, eða kannski ekki líkindi en svona ákveðin hughrif. Díana Sjöfn fjallar um bækur í Lestrarklefanum. Sagan gerist um jól, nánar tiltekið þá á meginframvindan sér stað á aðfangadagskvöld. Dagur og Gunnar eiga það einnig sameiginlegt að ná að púsla saman ljóðrænum texta með mjög áreynslulausum hætti. Það er eitthvað fleira þarna sem að gefur þessa samanburðar-tilfinningu, jú kannski þessi einfaldleiki sögunnar sem á sama tíma segir svo margt í fáum orðum. Óþægilegt og þungt en samt létt og fallegt Lesandinn skynjar frá upphafi að eitthvað óþægilegt muni eiga sér stað. Það eru mörg ósögð orð þarna á milli aðalpersónanna tveggja og orðin hanga í loftinu, þung en á sama tíma svo létt. Léttleikatilfinningin kemur frá orðasmíði Dags sem að er ákaflega lipur og falleg. Það er greinilegt að Dagur hefur nostrað við hvert orð. Ég gæti týnt ótal margar setningar úr þessari bók og rammað þær sérstaklega inn vegna fegurðar þeirra. Dagur hefur í raun sérstakt lag á því að segja frá á mjög lýsandi hátt sem nær einhvern veginn inn að vissri kviku. Sagan er fábrotin en samt svo stór og mikil. Dagur lætur hughrifin vera í aðahlutverki og hin ósögðu orð og lífið á milli orðanna vaxa innra með lesandanum. Það er í raun aðdáunarvert að textinn sé svona, mig langar að segja að hann nánast svífi um, þegar hann er á sama tíma augljóslega mjög nákvæmt unninn. Barn og kálfur Við höfum tvær meginpersónur og saga þeirra er mjög stór. En við sem lesendur fáum einungis að gægjast inn í örlítinn glugga í lífi þeirra. Á sama tíma fáum við frekar heildstæða mynd af þeim, vonandi er þetta ekki ruglandi lýsing hjá mér en svona er þetta og það er ákveðin kúnst að ná því. Það er aðfangadagskvöld og kýrin á bænum er að bera. Hún er loksins að fæða kálfinn sinn. Húsfrúin Magga er einnig ólétt, en hún og kýrin hafa gengið í gegnum meðgönguna saman. Þetta mun verða fyrsta barn hjónanna, þeirra Möggu og Guðmundar. Sagan fjallar því um merkisáfanga í lífi þeirra. Guðmundur er maður fárra orða en hann og Magga skynja samt hvort annað mjög sterkt. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Menning Bókaútgáfa Jól Mest lesið David Hockney er látinn Menning Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Fleiri fréttir Bylgjulestin í Fjölskyldu og húsdýragarðinum Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Ung húð þarf ekki tíu skrefa húðrútínu Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Bylgjulestin: Sólskin og stemning í Grindavík Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Fjarfundaþjónusta Hugarafls er lífsbjörg fyrir fólk Topptjöldum fylgir nýtt frelsi á ferðalögum Bylgjulestin leggur af stað inn í sumarið Endurvekja límmiðaleik Bylgjunnar Celebrating George Michael kemur til Íslands Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Sjá meira