Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. desember 2025 08:45 Kristín Benediktsdóttir er umboðsmaður Alþingis. Hulda Margrét Óladóttir Umboðsmaður Alþingis hefur gert athugasemdir við málsmeðferð kærunefndar útlendingamála og beint því til nefndarinnar að hún taki mál fyrir að nýju. Samkvæmt áliti var umfjöllun nefndarinnar áfátt og er henni bent á að taka tillit til sjónarmiða umboðsmanns í framtíðinni.
Málið varðaði A, umsækjanda um alþjóðlega vernd, hvers umsókn var synjað. A taldi sig hafa óskað eftir því við talsmann sinn í tölvupósti að ákvörðun Útlendingastofnunar yrði kærð en talsmaðurinn svaraði ekki tölvupóstinum. Það var ekki fyrr en starfsmaður Útlendingastofnunar hafði samband við A vegna heimfarar sem hún varð þess áskynja að ákvörðunin hefði ekki verið kærð. Kærði A ákvörðunina sjálf en þá voru nokkrir dagar liðnir frá því að kærufresturinn rann út. Í áliti sínu segir að þegar kærunefnd útlendingamála tók málið til umfjöllunar hefði hún átt að athuga málið betur og taka tillit til þátta sem A gat ekki stjórnað. Nefndin hefði til að mynda dregið þá ályktun að A hefði sjálft átt að hafa samband við Útlendingastofnun með fyrirspurn um mál sitt. Þetta segir umboðsmaður ekki forsvaranlegt þar sem A hefði verið skipaður talsmaður sem hefði það hlutverk að koma fram fyrir hennar hönd gagnvart stjórnvöldum. Þá taldi umboðsmaður það varhugavert að láta umsækjendur um aþjóðlega vernd bera hallann af mistökum talsmanna sinna. Umboðsmaður sagði einnig að hvað varðaði að taka kæru til umfjöllunar eftir að kærufrestur rann út hefði nefndin mátt horfa til þess að hversu skammur tími var liðinn. Þá vakti hann athygli á því að kærufresturinn, fimmtán dagar, væri frávik frá almennum reglum stjórnsýslulaga um þriggja mánaða kærufrest. Því var þannig beint til nefndarinnar að taka málið fyrir að nýju ef þess yrði óskað og að haga málsmeðferð í samræmi við þau sjónarmið sem umboðsmaður hefði reifað í áliti sínu.
Hælisleitendur Umboðsmaður Alþingis Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira