Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Agnar Már Másson skrifar 21. desember 2025 23:29 Ingibjörg hefur hleypt af stað söfnun fyrir Maríu, vinkonu sína sem missti dóttur sína í Suður-Afríku. Þær tvær hafa báðar ent börnin sín í meðferð til landsins. Samsett Mynd Söfnun hefur verið hrundið af stað fyrir fjölskyldu íslensku stúlkunnar sem lést í bílslysi í Suður-Afríku á miðvikudag. Vinkona móður stúlkunnar, sem og bróður hennar hvern hún var að heimsækja, stendur fyrir söfnuninni.
Í gær var greint frá því að Íslendingarnir sem létust í umferðarslysi í Suður-Afríku í vikunni hefðu verið þar til að heimsækja íslenskan dreng í fíknimeðferð. Systir drengsins og föðuramma létust í slysinu, en faðir hans liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Móðir stúlkunnar nefnist María Sif Ericsdóttir en vinkona hennar, Ingibjörg Einarsdóttir, hefur nú hrundið af stað söfnun fyrir Maríu. Ingibjörg á einnig dreng sem er í meðferð í Suður-Afríku. „Harmurinn er ólýsanlegur,“ skrifar Ingibjörg á Facebook. Hún segir að María hafi farið til Suður-Afríku á föstudag með fjölskyldu sinni til að færa syninum fréttirnar og sækja látna dóttur sína og ömmu drengsins. Faðir drengsins liggi enn þungt haldinn á spítala og þurfi líklega langa endurhæfingu ef hann lifir af. „Til að standa straum af kostnaði og til að létta vinkonu minni lífið á þessum erfiðu tímum viljum við sem stöndum henni næst efna til söfnunar í hennar nafni,“ skrifar hún og tekur fram að það síðasta sem hún þurfi á að halda núna sé að hafa fjárhagsáhyggjur, bæði vegna kostnaðar við áframhaldandi meðferð fyrir drenginn og kostnaðar sem fellur á hana vegna harmleiksins. Þá útlistar hún reikningsnúmer Maríu, sem sé 2200-26-095108 og kennitala 241178-4049 Bústaðakirkja opnaði dyr sínar á föstudag fyrir aðstandendur og vini hinna látnu og þess slasaða. Athöfnin var vel sótt og fjölmenntu samnemendur stúlkunnar meðal annars til að minnast hennar, sýna samstöðu og samhug. Dæmi eru um að foreldrar sendi börn til Suður-Afríku í meðferð vegna vímuefnavanda þar sem þeir finna ekki réttu úrræðin hér á landi. Mæðurnar þrjár sem fóru með drengi sína til Suður-Afríku hafa auk þess verið tilnefndar til manns ársins.
Suður-Afríka Börn og uppeldi Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira