Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. desember 2025 12:01 Michael van Gerwen varð heimsmeistari 2014, 2017 og 2019. getty/James Fearn Michael van Gerwen, þrefaldur heimsmeistari í pílukasti, segist enn sem komið er vera alveg sama um nafnana Luke Littler og Humphries sem hafa unnið HM undanfarin tvö ár.
Margir búast við því að nafnarnir mætist í úrslitum heimsmeistaramótsins í pílukasti 3. janúar næstkomandi. Van Gerwen getur hins vegar sett strik í þann reikning en hann gæti mætt Humphries í undanúrslitum og Littler í úrslitum. „Mér er alveg sama um Luke og Luke núna. Ég þarf bara að einbeita mér að minni eigin frammistöðu. Ég get hvort eð er ekki mætt þeim fyrr en í undanúrslitunum eða úrslitunum,“ sagði Van Gerwen. Hollendingurinn stígur á stokk í kvöld og mætir Þjóðverjanum Arno Merk í 3. umferð heimsmeistaramótsins. Merk kom gríðarlega á óvart með því að sigra fyrrverandi heimsmeistarann Peter Wright í 2. umferð HM, 3-1, en sá þýski er á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. Eftir leikinn sendi Van Gerwen Wright væna pillu. „Það kom mér alls ekki á óvart að hann hafi fallið úr keppni. Hann hefur spilað hörmulega undanfarið og ég held það sé kominn tími á að hann hætti,“ sagði van Gerwen um Wright. Van Gerwen sigraði Japanann Mitsuhiko Tatsunami í 1. umferð HM, 3-0, og hafði svo betur gegn Íranum William O'Connor í 2. umferðinni, 3-1. Þar var Van Gerwen með 100,20 í meðaltal. Sýnt verður beint frá heimsmeistaramótinu í pílukasti á Sýn Sport Viaplay í dag. Fyrri hlutinn hefst klukkan 12:25 og sá síðari klukkan 18:55.
Pílukast Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira