Solskjær í viðræður við United Valur Páll Eiríksson skrifar 6. janúar 2026 17:31 Solskjær gæti tekið aftur við Manchester United. Charlie Crowhurst/Getty Images Ole Gunnar Solskjær átti í dag viðræður við stjórnarmenn hjá Manchester United um að taka við liðinu tímabundið sem þjálfari.
The Athletic greinir frá. Portúgalanum Rúben Amorim var sagt upp sem þjálfara liðsins í gær eftir 14 mánuði við stjórnvölin. Leit stendur eftir að eftirmanni. Solskjær sé á meðal annarra kosta sem United hefur sett sig í samband við. Áhersla sé lögð á að finna tímabundinn kost til að stýra liðinu út leiktíðina áður en framtíðarlausn liggi fyrir. Solskjær er langlíklegastur þeirra kosta sem standa til boða, til að taka við liðinu út leiktíðina, samkvæmt breskum fjölmiðlum. Darren Fletcher, fyrrum liðsfélagi Solskjær hjá United, og núverandi þjálfari unglingaliðs þess mun stýra því gegn Burnley á Turf Moor í ensku úrvalsdeildinni annað kvöld. Þá má einnig vera að hann stýri liðinu í FA-bikarnum um komandi helgi. Solskjær er sagður opinn fyrir því að taka við liðinu en hann á hús í Chesire, rétt utan Manchester-borgar, og hefur verið án starfs síðan honum var sagt upp hjá Besiktas í Tyrklandi í ágúst. Solskjær er sagður líklegastur til að taka við. Hann tæki þá við í annað sinn en hann var einnig ráðinn þjálfari liðsins tímabundið eftir að José Mourinho var látinn taka poka sinn í desember 2018. Solskjær var eftir það ráðinn varanlega vegna góðs árangurs og stýrði liðinu fram í nóvember 2021. Hann er eini þjálfarinn sem hefur afrekað það að stýra United í efstu fjögur sætin í ensku úrvalsdeildinni tvö ár í röð frá því að Sir Alex Ferguson hætti árið 2013. Solskjær hefur einnig stýrt Molde í heimalandinu, í tvígang, og Cardiff City auk United og Besiktas, á sínum þjálfaraferli. Hann var leikmaður Manchester United um árabil og spilaði yfir 200 leiki fyrir liðið. Hann skoraði frægt sigurmark í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 1999 sem tryggði United þrennu titla það tímabilið.
Enski boltinn Manchester United Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Emil Barja tekur við Stjörnunni Körfubolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Sjá meira