Þyngdartap með lyfjum mun fljótara að ganga til baka eftir að notkun er hætt Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. janúar 2026 08:23 GLP-1 þyndarstjórnunarlyf eru góðra gjalda verð en skammtímanotkun þeirra er ekki langtímalausn. Getty/Peter Dazeley Fólk sem léttist með notkun GLP-1 þyngdarstjórnunarlyfja nær fyrri þyngd á innan við tveimur árum þegar það hættir að nota lyfin, eða fjórum sinnum hraðar en fólk sem léttist með öðrum hætti.
Þetta eru niðurstöður rannsóknar vísindamanna við Oxford-háskóla, sem birtar voru í British Medical Journal. Vísindamennirnir skoðuðu 37 rannsóknir á notkun þyngdarstjórnunarlyfja, sem náðu til samtals 9.341 einstaklings. Meðal meðferðartíminn var 39 vikur og eftirfylgnitímabilið 32 vikur. Eftir að notkun lyfjanna var hætt bættu þátttakendur við sig 0,4 kílóum á mánuði, að meðaltali. Meðalþyngdartapið af notkun lyfjanna var 8,3 kíló en á einu ári eftir að meðferð var hætt höfðu þátttakendur bætt aftur við sig 4,8 kílóum, að meðaltali. Samanburður við aðrar megrunaraðferðir, megrunarkúra eða æfingarprógrömm, leiddi í ljós að þeir sem léttust á þyngdarstjórnunarlyfjum bættu þyngdinni aftur á sig fjórum sinnum hraðar en hinir. Vísindamennirnir segja að þyngdarstjórnunarlyfjunum sé ekki um að kenna, heldur endurspegli niðurstöðurnar þá staðreynd að ofþyngd sé krónískur sjúkdómur sem krefjist viðhalds. Þannig séu niðurstöðurnar áminning um að horfa þurfi til lengri tíma þegar kemur að þyngdarstjórnun, ekki skammtímalausna. Guardian fjallar ítarlega um málið.
Þyngdarstjórnunarlyf Heilbrigðismál Lyf Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Erlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fleiri fréttir Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Sjá meira