Hildur lenti í ótrúlegri hakkavél Sindri Sverrisson skrifar 10. janúar 2026 20:45 Ewa Pajor skoraði fernu í kvöld og hér þarf Hildur Antonsdóttir að horfa upp á eitt markanna verða til. Getty/Ruben De La Rosa Barcelona var nálægt því að setja met þegar liðið tók á móti Hildi Antonsdóttur og stöllum hennar í Madrid CFF í kvöld í spænsku 1. deildinni í fótbolta. Þrettán mörk voru skoruð í leiknum.
Stjörnur Barcelona-liðisins voru í miklu stuði í þessum fyrsta leik sínum á nýju ári og unnu sannkallaðan risasigur, 12-1. Um tíma leit út fyrir að þeim tækist að slá félagsmet sitt en stærstu sigrar liðsins eru 13-0 sigrar tímabilin 2016-17 og 2010-11. Það var pólska markamaskínan Ewa Pajor sem kom Barcelona á bragðið með fyrstu tveimur mörkunum en hún skoraði þrennu í fyrri hálfleik og alls fjögur mörk. Staðan var orðin 7-0 í hálfleik en gestunum tókst að klóra aðeins í bakkann með fyrsta marki seinni hálfleiksins. Barcelona svaraði því með fimm mörkum, því síðasta á 81. mínútu, og setti því upp sannkallaða sýningu. Spánarmeistararnir, sem töpuðu úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðustu leiktíð, eru nú með 42 stig á toppi spænsku deildarinnar eftir fimmtán umferðir, sjö stigum á undan Real Madrid. Lið Hildar, Madrid CFF, er hins vegar í 7. sæti með 23 stig.
Spænski boltinn Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Sjá meira