Enski boltinn

Radd­laus eftir krafta­verk: Sáum Grims­by slá út Man. Utd og vildum gera eins

Sindri Sverrisson skrifar
Markvörðurinn Jay Lynch og félagar hans voru kampakátir eftir sigurinn.
Markvörðurinn Jay Lynch og félagar hans voru kampakátir eftir sigurinn. Getty/Carl Recine

Helstu hetjur Fleetwood Town gátu varla lýst hamingju sinni eftir sigurinn ótrúlega gegn Englandsmeisturum Arsenal í kvöld, eftir 1-1 jafntefli og vítaspyrnukeppni í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins í fótbolta.

„Ég er búinn að missa röddina við að stjórna vörninni, en allt liðið var stórkostlegt allan leikinn. Að vinna Englandsmeistarana í vítaspyrnukeppni – þessir strákar eiga allir hrós skilið,“ sagði Jay Lynch, markvörður Fleetwood, sem varði spyrnu Bruno Guimaraes í vítaspyrnukeppninni. Liðsfélagar hans nýttu allar sínar spyrnur með glæsibrag.

„Við horfðum til þess þegar Grimsby vann Man. Utd í fyrra. Við bárum það saman, þótt þetta séu meistararnir. Við hugsuðum: „Ef við leggjum allt í þetta, sjáum hvað gerist.““

Þetta var dæmigert kvöld í Fleetwood. Við áttum von á stormi, við vissum að aðstæðurnar yrðu hræðilegar, svo við héldum að það gæti unnið með okkur. Þetta er frábært fyrir félagið og bæinn. Í alvöru talað, þetta skiptir alla öllu máli,“ sagði Lynch sigurreifur.

Adam Murphy og félagar ærðust af fögnuði þegar úrslitin réðust.Getty/Lewis Storey

Arsenal var með hálfgert varalið í kvöld en þó léku helstu framherjar liðsins, Kai Havertz og Viktor Gyökeres, allan leikinn og stjörnunum fjölgaði í seinni hálfleik. Gyökeres skoraði eina mark liðsins en alls átti Arsenal 19 skot sem ekki hæfðu markrammann, gegn liði sem er neðarlega í D-deildinni.

Conor Haughey skoraði af miklu öryggi úr síðustu vítaspyrnu Fleetwood og var spurður hvað hefði farið í gegnum hugann fyrir spyrnuna:

„Ég veit það ekki – bara velja staðinn og setja hann inn! Upp í hornið og svo bara hlaupa.

Við vorum að vinna meistarana í ensku úrvalsdeildinni, það sýnir bara hversu gott þetta lið er,“ sagði Haughey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×