Litla liðið í París sló út stórveldi PSG Aron Guðmundsson skrifar 12. janúar 2026 22:12 Jonathan Ikoné skoraði eina mark kvöldsins. Hér er hann í leik liðanna í upphafi árs. Vísir/Getty Paris FC gerði sér lítið fyrir og sló út nágranna sína, ríkjandi bikarmeistarana í stórveldi Paris Saint-Germain, er liðin mættust í franska bikarnum í kvöld á Parc des Princes . Lokatölur 1-0 Paris FC í vil.
Liðin tvö mættust í fyrsta Parísarslagnum sín á milli síðan árið 1978 í upphafi þessa árs í frönsku deildinni þar sem að PSG fór með 2-1 sigur af hólmi. Í kvöld var hins vegar komið að því að liðin mættust í þrjátíu og tveggja liða úrslitum franska bikarsins þar sem Paris Saint-Germain er ríkjandi meistari síðustu tveggja tímabila og er að auki ríkjandi Evrópumeistari félagsliða sem og ríkjandi Frakklandsmeistari. Skemmst er frá því að segja að úrslit kvöldsins hafi verið söguleg í meira lagi því mark frá Jonathan Ikoné á 74.mínútu sá til þess að Paris FC, litla liðið í París, sló út Paris Saint-Germain. Aðeins um hundrað metrar skilja heimavelli liðanna að og er saga félaganna tveggja samofin að miklu leiti þar sem að jú eitt sinn voru þau eitt og sama félagið. Árið 1970, ári eftir stofnun félagsins, sameinaðist Paris FC, Stade Saint-Germain, í félag sem var kallað Paris Saint-Germain. Það samstarf gekk aðeins í þrjú ár því árið 1972 klofnaði sameinaða félagið í tvö félög, þau sem við nú þekkjum sem Paris FC og Paris Saint Germain. Undanfarinn áratug hafði Paris FC dvalið í næstefstu deild Frakklands en fyrir yfirstandandi tímabil tryggði liðið sér sæti í efstu deild á nýjan leik og er nú þegar farið að stríða stóra bróður. Paris Saint-Germain óð í færum í kvöld og réði ferðinni í leiknum en tókst ekki að koma boltanum í netið. Bikarmeistarar síðustu tveggja tímabila úr leik. Paris FC er komið áfram í 16-liða úrslit franska bikarsins.
Franski boltinn Mest lesið Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Sjá meira