Mathias „Gæsling“ kemur til Andabæjar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2026 11:02 Andrés Önd og Mathias Gidsel á forsíðu nýjustu Syrpunnar í Danmörku. Danski handboltamaðurinn Mathias Gidsel er persóna í sögu um Andrés Önd í væntanlegri Syrpu.
Gidsel, sem er að margra mati besti handboltamaður heims um þessar mundir, er persóna í sögunni „Boltaleikir og bófar“ í Syrpu sem kemur út á fimmtudaginn, sama dag og Evrópumótið í handbolta hefst. Gidsel, sem heitir Mathias Gæsling, kveðst upp með sér að vera kominn í sögu um Andrés Önd en hann er einnig framan á Syrpunni. „Það er gaman að sjá sjálfan mig sem teiknimyndapersónu ásamt Andrési Önd. Ég las blaðið oft í æsku svo það er auðvitað stórt að ég hafi nú líka fengið að spila fyrir Andabæ,“ sagði Gidsel í fréttatilkynningu. „Mér finnst frábært að Syrpan skuli vekja athygli á handbolta í aðdraganda Evrópumótsins og ég vona að það geti hvatt enn fleiri börn og unglinga til að fara út og prófa íþróttina, svitna á skemmtilegan hátt og kynnast nýjum vinum.“ View this post on Instagram A post shared by Mathias Gidsel (@gidsel) Í sögunni „Boltaleikir og bófar“ er Andrés Önd aðstoðarframleiðandi í Andabæjarhöllinni þar sem á að taka upp auglýsingamyndband fyrir handboltamót. Auk Gidsels koma hinn sænski Jim Gottfridson, Þjóðverjinn Juri Knorr og Magnus Rød, leikmaður norska landsliðsins, fyrir í sögunni. Sem fyrr sagði nefnist Gidsel Mathias Gæsling í sögunni, Jim Gottfridson er Jim Gottfridsand, Juri Knorr er Juri Knurhår og Magnus Rød er Magnus Rødkælk. Eins og venjulega þegar Andrés Önd á í hlut fara hlutirnir ekki alveg eins og þeir eiga að fara en tökurnar á auglýsingunni raskast þegar Bjarnabófarnir dulbúast sem leikstjórar. Þeir eru þó alls ókunnugir handboltanum sem íþrótt og fá fyrir ferðina frá handboltamönnunum fjórum. Þetta er í fyrsta sinn sem danskur handboltamaður kemur fyrir í sögu um Andrés Önd en áður höfðu dönsku tennisstjörnurnar Caroline Wozniacki og Holger Rune og badminton-spilarinn Viktor Axelson verið í Andréssögu. Gidsel og félagar í danska landsliðinu hefja leik á EM gegn Norður-Makedóníu á föstudaginn. Portúgal og Rúmenía eru einnig í B-riðli mótsins. Danir hafa orðið heimsmeistarar fjórum sinnum í röð en ekki unnið EM síðan 2012.
Danski handboltinn EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira