Alfreð lét sér einn hornamann nægja og stýrði Þjóðverjum til sigurs Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. janúar 2026 21:09 Alfreð Gíslason fagnaði sigri í fyrsta leik Þýskalands á EM. Getty/Daniel Karmann Alfreð Gíslason stýrði Þýskalandi til öruggs 30-27 sigur í fyrsta leiknum á EM í handbolta.
Þýskaland náði að slíta sig frá Austurríki undir lok fyrri hálfleiks og taka fína forystu, áhlaup Austurríkismanna undir lok leiks dugði því ekki til. Þjóðverðar þykja líklegir til að fara langt á mótinu og mögulega komast á verðlaunapall á EM í fyrsta sinn síðan gullið fór um hálsinn árið 2016. Þeir gátu þó ekki reitt sig á einn besta leikmann liðsins frá því móti í kvöld, vinstri hornamaðurinn Rune Dahmke er að glíma við meiðsli. Lukas Mertens, leikmaður Magdeburg, var því einn síns liðs í vinstra horninu en nýtti færin vel og skoraði tvö mörk. Johannes Golla var hins vegar markahæstur, með sjö mörk skoruð. Lukas Zerbe, Miro Schluroff og Renars Uscins fylgdu honum eftir. Þýskaland og Austurríki eru í A-riðli með Serbíu og Spáni en Spánverjar unnu tveggja marka sigur gegn Serbum fyrr í dag. Noregur vann síðan 39-22 stórsigur gegn Úkraínu í leik liðanna í C-riðli. Alexander Blonz og Patrick Helland Anderson voru markahæstir hjá Norðmönnum með sjö mörk. Noregur tyllir sér því í efsta sæti C-riðils, með örlítið betri markatölu en Frakkland sem vann 42-28 gegn Tékklandi fyrr í dag.
Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira