Bærinn fær 70 milljónir fyrir gamla Landbankahúsið sem fær nýtt hlutverk Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 16. janúar 2026 10:17 Lagt er upp með að þrátt fyrir breytt hlutverk fái gamla Landsbankahúsið á Akranesi að halda sínum gamla stíl. Akranes Akranesbær hefur gengið frá sölu á gamla Landsbankahúsinu á Akranesi sem stefnt er að því að fái nýtt hlutverk. Söluverðið er sjötíu milljónir en það er fyrirtækið Hraun fasteignafélag ehf. sem er kaupandi en ætlunin er að opna hótel og veitingastað í húsinu eftir að það hefur verið gert upp. Þó er lagt upp með að húsið haldi upprunalegum stíl og einkennum sínum eins og kostur er.
Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Akraness. „Fyrir tæpu ári auglýsti Akraneskaupstaður eftir aðila til samstarfs um skipulag og þróun á reit sem inniheldur lóðirnar Suðurgötu 57, 47 og Skólabraut 24, vestan við Akratorg. Jafnframt var þá óskað eftir kauptilboði í gamla Landsbankann. Engin tilboð bárust, en nokkrir aðilar sýndu húsinu áhuga í framhaldi af því. Söluverðið nú er 70 milljónir króna sem er í samræmi við útboðsgögn. Samkomulag er um að kaupendur hafi tíma til að vinna að skipulagi á þeim reitum og ákveða síðar um kaup á byggingarrétti þar,“ segir meðal annars í tilkynningu bæjarins. Framkvæmdir gætu hafist á vordögum Þar er haft eftir Haraldi Benediktssyni bæjarstjóra að um sé að ræða tímamót fyrir bæinn. „Fyrir það fyrsta er hér samkomulag við kaupendur sem hafa reynslu af uppbyggingu á ferðaþjónustu og endurnýjun á eldri húsum. Í öðru lagi er nú loksins að komast á skrið undirbúningur að opnun á hóteli á Akranesi. Mestu máli skiptir að salan er upphaf að eflingu miðbæjarins. Akraneskaupstaður mun í framhaldinu leita leiða til að efla ferðaþjónustu sem atvinnugrein á Akranesi,“ er haft eftir Haraldi. Haraldur Benediktsson er bæjarstjóri Akraness.Vísir/Ívar Fannar Kaupendur munu hafa tíma til að huga að ástandi hússins á næstu vikum en ef allt gengur eftir má búast við að framkvæmdir hefjist með vorinu, en bygging fjórðu hæðar hússins fer í skipulagsferli. „Við sjáum mikil tækifæri í Akranesi sem áfangastað ferðamanna,“ er haft eftir ónefndum fulltrúa Hrauns fasteignafélags ehf. í tilkynningunni. „Bærinn býr yfir sterkri sérstöðu bæði hvað varðar náttúru, sögu og nálægð við höfuðborgarsvæðið, en einnig í öflugu samfélagi og miðbæ sem hefur burði til frekari uppbyggingar. Með þessu verkefni viljum við leggja okkar af mörkum til að styrkja miðbæinn, skapa lifandi þjónustu og taka þátt í markvissri uppbyggingu ferðaþjónustu á svæðinu, í nánu samstarfi við sveitarfélagið og aðra hagsmunaaðila.“
Akranes Fasteignamarkaður Sveitarstjórnarmál Landsbankinn Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Fleiri fréttir Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Sjá meira