Gamli Framarinn skíthræddur að jöfnunarmarkið yrði dæmt af Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2026 11:02 Vilhelm Poulsen skoraði fjögur mörk gegn Sviss. epa/Cornelius Poppe Vilhelm Poulsen, fyrrverandi leikmaður Fram, var hetja Færeyja gegn Sviss á Evrópumótinu í handbolta í gær. Hann skoraði jöfnunarmark Færeyinga undir blálokin en var smeykur um að það yrði dæmt af.
Mikið gekk á undir lok leiks Færeyja og Sviss í Bærum í Noregi í gær. Þeir fjölmörgu Færeyingar sem voru á leiknum voru eflaust orðnir ansi svartsýnir þegar Svisslendingar voru með boltann undir lokin og marki yfir, 28-27. En Pauli Jacobsen varði skot frá Manuel Zehnder og Færeyjar fengu tækifæri til að jafna. Vilhelm braust í gegnum svissnesku vörnina, skoraði og tryggði Færeyingum sitt fyrsta stig á Evrópumóti í sögunni. „Það er frábær tilfinning að skora síðasta markið og tryggja jafnteflið,“ sagði Vilhelm eftir leikinn. Dómararnir ákváðu að skoða jöfnunarmarkið á myndbandi og þá voru taugarnar þandar hjá Vilhelm. „Ég varð svolítið stressaður þegar þeir fóru að skoða myndbandsupptökuna, hvort þeir myndu dæma ruðning eða ekki, en mér fannst það ekki vera ruðningur,“ sagði Vilhelm. Skyttan örvhenta leikur með Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni en hann kom þangað frá Lemvig í Danmörku. Þar áður lék hann með Fram hér á landi. Vilhelm lék með Fram um tveggja ára skeið (2020-22).vísir/hulda margrét Vilhelm kom til Fram ásamt landa sínum, Rógva Dal Christiansen, fyrir tímabilið 2020-21. Þá lék hann tuttugu leiki í Olís-deildinni og skoraði 89 mörk. Tímabilið eftir, 2021-22, var Vilhelm markahæsti leikmaður Fram með 129 mörk í tuttugu deildarleikjum. Næsti leikur Færeyja er gegn Svartfjallalandi á morgun. Svo gæti farið að Færeyingar myndu lenda í milliriðli með Íslendingum.
EM karla í handbolta 2026 Færeyjar Fram Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira