Norðmenn áfram í milliriðla Aron Guðmundsson skrifar 17. janúar 2026 21:27 Sander Sagosen, lykilmaður norska landsliðsins Norska landsliðið er komið áfram í milliriðla á EM í handbolta og mun spila úrslitaleik við ríkjandi Evrópumeistara Frakka um toppsæti C-riðils í næstu umferð. Noregur hafði betur gegn Tékklandi í kvöld, 29-25
Eftir sigur gegn Úkraínu í fyrstu umferð riðlakeppninnar vissu Norðmenn að sigur gegn Tékkum í kvöld myndi tryggja þeim sæti í milliriðlum. Það verk kláruðu Norðmenn en þurftu að hafa fyrir því vegna þess að framan af reyndust Tékkarnir sterkari aðilinn. En með August Baskar Pedersen í fararbroddi í markaskorun með níu mörk tókst Norðmönnum að snúa leiknum sér í vil og sigla heim fjögurra marka sigri, 29-25 og þar með stilla upp úrslitaleik við Frakka um toppsæti C-riðils sem færir öðru hvoru liðinu stig inn í milliriðlana. Svíar byrja vel Þá mættu Svíar til leiks af krafti á Evrópumótið með fimm marka sigri á Hollandi í kvöld, 36-31, en liðin eru með Króötum Dags Sigurðssonar og Georgíu í E-riðli. Svíar eru líkt og Danir og Norðmenn á heimavelli á mótinu og stemningin á Malmö leikvanginum í kvöld var kyngimögnuð. Svíarnir leiddu leikinn gegn Hollendingum allan tímann og Felix Claar, liðsfélagi Ómars Inga, Gísla Þorgeirs og Elvars Arnar hjá stórliði Magdeburgar fór á kostum í kvöld fyrir sænska landsliðið með átta mörk. Svíar mæta Georgíumönnum í næstu umferð á mánudaginn kemur og svo Króötum Dags Sigurðssonar í lokaumferð riðlakeppninnar á miðvikudaginn næstkomandi.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira