Höfuðstöðvar UNRWA í Jerúsalem rifnar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. janúar 2026 12:28 Stórar vinnuvélar eru á staðnum og vinna að því að rífa niður allt sem áður stóð innan höfuðstöðva UNRWA. Getty/Faiz Abu Rmeleh Höfuðstöðvar Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í Jerúsalem hafa verið rifnar niður. Framkvæmdastjóri UNRWA á Vesturbakkanum segir að samtökunum hafi verið gert viðvart um að framkvæmdaaðilar og lögregla hefðu mætt á vettvang í morgun til að hefja störf.
Höfuðstöðvarnar höfðu ekki verið notaðar í um það bil ár, ekki síst vegna hótana og ógnana, en að sögn Rolad Friedrich voru öryggisstarfsmenn sem höfðu verið ráðið til að gæta þeirra reknir burtu í morgun. Hann sagði í samtali við Guardian að yfirvöld hefðu einnig farið inn og lagt hald á búnað áður en niðurrif hófst. Ísraelski fáninn hefur verið dreginn að húni á staðnum og þá mættu nokkrir stjórnmálamenn á vettvang til að fagna áfanganum. Öryggismálaráðherrann Itamar Ben-Gvir sagði um að ræða „sögulegan dag“. Stjórnvöld í Ísrael hafa löngum sakað starfsmenn UNRWA um samstarf og stuðning við Hamas og bönnuðu stofnuninni að starfa í Ísrael í fyrra. Formlega hefur stofnunin það á höndum að sjá 2,5 milljónum Palestínumanna á Gasa, Vesturbakkanum og Austur-Jerúsalem fyrir aðstoð, auk þess sem þau starfa einnig í þágu yfir þriggja milljóna flóttamanna í Sýrlandi, Jórdaníu og Líbanon. Samkvæmt UNRWA hafa 382 starfsmenn stofnunarinnar látist í árásum Ísraels á Gasa.
Palestína Ísrael Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira