Fyrstu viðbrögð við ræðu Donalds Trump: „Ég bíð enn eftir að mennirnir í hvítu sloppunum nái í hann“ Jakob Bjarnar skrifar 21. janúar 2026 15:27 Óhætt er að segja að löng ræða Donalds Trump hafi fallið í grýttan jarðveg, fyrstu viðbrögð einkennast af fullkominni furðu. AP Photo/Evan Vucci Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda er einn þeirra sem tjáir sig um ræðu Donalds Trump Bandaríkjaforseta á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) en þar voru margir þjóðarleiðtogar heims staddir – í Davos í Sviss. Óhætt er að segja að viðbrögðin séu blendin; fólk veit eiginlega ekki hvaðan á sig stendur veðrið.
Trump var að ljúka ræðu sinni nú rétt í þessu. Fólk er byrjað að tjá sig á Facebook, um efni ræðunnar. Að Íslendingar kalli sig „daddy“ Karen Kjartansdóttir ráðgjafi er ein þeirra. „Ég var að kíkja á ræðu Trumps í Davos, hann segir að Íslendingar elski sig og kalli hann „daddy“. Ég legg ekki meira á ykkur.“ Ólafur telur Trump ekki með öllum mjalla.vísir/ívar Margir tjá sig á þræði Karenar, þeirra á meðal er Ólafur sem segir einfaldlega: „Ég bíð enn eftir að mennirnir í hvítu sloppunum nái í hann. Af hverju er það ekki búið að gerast?“ Alexandra Briem borgarfulltrúi tjáir sig einnig. „Við fólkið sem vill að við reynum að sleikja Trump upp og hafa hann góðan, eða læðast með veggjum og vona að hann taki ekki eftir okkur, vil ég segja að ég vona að þessar nýjustu yfirlýsingar hans á blaðamannafundi í gær og í Davos í dag sýni ykkur að það mun ekki virka.“ Trump í tómu tjóni Alexandra segir Trump einfaldlega ekki í veruleikasambandi. Hann ruglist á löndum, tali um stríð sem hafa aldrei verið og samskipti sem aldrei áttu sér stað. Hún telur friðþægingu ekki skila neinu. Alexandra Briem telur útséð með að nokkuð fáist fram þegar fautar eins og Trump eru annars vegar.vísir/anton brink „Það sem fautar eins og hann vilja er að okkur líði eins og þeir séu búnir að vinna, að andstaða sé gagnslaus, svo við gefumst upp fyrir fram. Það er það síðasta sem við eigum að gera. Þannig sigra menn eins og hann. Stöndum með Grænlandi, stöndum með Danmörku, stöndum með Kanada, stöndum með Evrópu og stöndum með Íslandi.“ Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks er ekki meðal aðdáenda Trumps, svo mikið er víst. Hann er forviða: „Trump er í tómu tjóni í ræðu sinni í Davos núna. Nefnir Ísland aftur og aftur, segir að Íslendingar hafi kallað sig „daddy“. Eins að hlutabréfamarkaður í Bandaríkjunum hafi tekið dýfu vegna Íslands. - Þetta er tómt rant sem stenst enga skoðun. Kristinn hefur ekki haft Trump í hávegum og ekki breyttist það eftir ræðu hans sem lauk nú rétt í þessu.vísir/egill Meðal annars nefndi forsetinn að engin vindorkuvinnsla væri í Kína. Heimildir Forbes segja að 16% af rafmagni Kína kæmi frá vindorku. Það verður ærið verkefni að fara yfir allar rangfærslur í rantinu.“ Hrun siðmenningar í beinni Kristin segir það huggun harmi gegn að forsetinn segist ekki ætla að taka Grænland með hervaldi heldur með samningnum, en því sé erfitt að treysta. „Hann á til að snúast hraðar en vindmillurnar sem Trump segir að snúist ekki í Kína.“ Og Erni Árnasyni leikara er brugðið: „Er maður að horfa á hrun siðmenningar í beinni? Donald Trump í Davos… Guð hjálpi þessum blessaða heimi okkar með svona fólk í stýrishúsi heimsins.“ Fáir eru hins vegar til að taka upp hanskann fyrir Donald Trump eftir þessa ræðu hans.
Samfélagsmiðlar Donald Trump Grænland Vindorka Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Fleiri fréttir Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Sjá meira