Lífið

Aron Can og Erna elska eldhúsbúrið

Eiður Þór Árnason skrifar
Tónlistarmaðurinn Aron Can hefur vakið athygli fyrir sólóferil sinn og tónlist sína með Iceguys.
Tónlistarmaðurinn Aron Can hefur vakið athygli fyrir sólóferil sinn og tónlist sína með Iceguys. Sjónarhorn Studio - Vísir/Lýður

Tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin og kærasta hans Erna María Björnsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair, hafa sett íbúð sína í Grafarvogi í Reykjavík á sölu. 

Þriggja herbergja íbúðin er tæplega 106 fermetrar að stærð og staðsett í litlu fjölbýlishúsi í Gautavík sem byggt var árið 1999. Ásett verð er 85,9 milljónir króna. 

Í fasteignaauglýsingu kemur fram að eignin hafi verið tekin í gegn árin 2019 og 2020. „Eigendur vilja taka það sérstaklega fram, að þau elska einna mest við íbúðina, að hafa eldhúsbúrið ásamt því að þvottahús og geymsla er innan íbúðar,“ segir þar ennfremur. 

Inn af eldhúsinu má nefnilega finna búr með opnanlegum glugga og er staðhæft að einnig sé hægt að nýta þetta rými sem almenna geymslu eða jafnvel skrifstofu. 

Aron skaust upp á stjörnuhimininn á Íslandi aðeins sextán ára gamall. Hann hefur gefið út fimm hljómplötur og kom sú síðasta, titluð Þegar ég segi monní, út árið 2024.

Þá hefur Aron vakið athygli með strákasveitinni Iceguys sem kom með hvelli inn í íslensku tónlistarsenuna.

Barnaherbergi íbúðarinnar. Saman eiga Aron og Erna einn son sem heitir Theo Can.Sjónarhorn Studio
Baðherbergið en það var gert upp 2019-20, að sögn eigenda.Sjónarhorn Studio
Hitt svefnherbergið.Sjónarhorn Studio
Eldhúsið er í svipuðum stíl og restin af íbúðinni. Engin ljósmynd var birt af búrinu rómaða.Sjónarhorn Studio

Tengdar fréttir

Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir

Stjórn Trúpí ehf. hefur samþykkt að greiða út fimmtíu milljónir króna í arð. Eini eigandi félagsins er tónlistarmaðurinn Aron Can Gultekin. Tekjur félagsins námu 78 milljónum króna í fyrra, samanborið við 30 milljónir árið áður.

Svikarar höfðu fjórar milljónir af Aroni Can

Aron Can Gültekin, tónlistar- og athafnarmaður, varð fyrir barðinu á svikahröppum þegar hann millifærði fjórar milljónir króna á reikning sem hann taldi vera í eigu erlends viðskiptaaðila.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.