Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. janúar 2026 11:04 Alex Jeffrey Pretti, 37 ára bandarískur ríkisborgari var drepinn af fulltrúum ICE í dag. AP Alex Jeffrey Pretti, 37 ára gamall hjúkrunarfræðingur og bandarískur ríkisborgari, var skotinn til bana af fulltrúum Innflytjenda- og tolleftirlits Bandaríkjanna, ICE, í Minneapolis í gær. Heimvarnarráðherra Bandaríkjanna hélt því fram að Pretti hefði ráðist á fulltrúana, þvert á það sem má sjá á myndefni af vettvangi.
Atvikið átti sér stað í Minneapolis í Minnesota í gær þar sem mikill fjöldi var saman kominn til að mótmæla aðgerðum stjórnvalda og ICE. Einungis nokkrar vikur eru síðan fulltrúar ICE skutu Renee Good, 37 ára konu, til bana í bíl hennar. Kristi Noem, heimvarnarráðherra Bandaríkjanna, talaði við blaðamenn í kjölfar morðsins. Þar lýsir hún ógnandi tilburðum Pretti og segir hann hafa nálgast fulltrúa ICE með byssu í hendi. „Einstaklingur nálgaðist bandaríska landamæraverði með níu millimetra hálfsjálfvirka skammbyssu. Fulltrúarnir reyndu að afvopna einstaklinginn en vopnaði maðurinn brást við á ofbeldisfullan hátt. Þar sem lögreglumaður óttaðist um líf sitt og líf fulltrúanna í kringum sig skaut hann varnarskotum,“ segir Noem samkvæmt CNN. „Sjúkraflutningamenn voru strax á staðnum og reyndu að veita manninum læknisaðstoð en hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Grunaði maðurinn var einnig með tvö skothylki með skotfærum sem innihéldu tugi skota. Hann var heldur ekki með nein skilríki. Þetta líta út fyrir að vera aðstæður þar sem einstaklingur kemur til að valda fólki hámarksskaða og drepa landamæraverði.“ Hún hélt því fyrst fram að fulltrúarnir hefðu ekki notað piparúða en dró síðan orð sín til baka. Myndefnið samræmist ekki orðum ráðherrans Fjöldi vitna var að morðinu og má finna fjölda myndskeiða á vefsíðum fjölmiðla vestanhafs. Miðað við myndefni sem Reuters hefur undir höndum og hefur greint má sjá að Pretti hélt á síma og tók upp fulltrúa ICE sem hrintu konu. Pretti kom sér þá á milli konunnar og fulltrúans. Hann setti höndina upp til að verja sig gegn piparúða sem fulltrúi ICE reyndi ítrekað að spreyja í augu hans. Þá koma nokkrir ICE-liðar og þvinga Pretti niður á fjóra fætur. Pretti berst á móti en sjá má að einn fulltrúinn teygir sig og nær í byssu, ekki liggur fyrir hvort að um hafi verið að ræða byssu Pretti. Fulltrúar Alríkislögreglunnar birtu mynd af byssunni sem Pretti var með þegar hann var skotinn. Augnabliki síðar skýtur fulltrúi ICE Pretti fjórum sinnum. Í myndskeiðinu hér fyrir neðan má heyra um tíu skot en talið er að annar fulltrúi ICE hafi einnig skotið Pretti. Við vörum við myndefninu. Brian O'Hara, lögreglustjóri Minneapolis, sagði að Pretti hefði haft tilskilin leyfi til að bera vopn og að hann hefði aldrei brotið af sér fyrir utan minni háttar umferðarlagabrot. Fólk kom saman og minntist Pretti.ap Enginn ofbeldisseggur Tim Walz, ríkisstjóri Bandaríkjanna, er meðal þeirra sem gagnrýna lýsingu Noem. „Ég hef séð myndbönd frá nokkrum sjónarhornum og þetta er viðbjóðslegt,“ segir Walz. „Alríkisyfirvöldum er ekki treystandi til að rannsaka málið, fylkið mun sjá um rannsóknina.“ Það kom til átaka á milli ICE-fulltrúa og mótmælenda í kjölfar morðsins.EPA Rory Shefchek, æskuvinur Pretti, segir í samtali við People að hann hafi verið almennilegur maður sem hafi komið vel saman við alla. Hann hefði ekki verið týpan sem leitaði í ofbeldi eða slagsmál.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira