Ungir Sjálfstæðismenn fengu áfengi í ferð með Vilhjálmi og fóru svo á kjörstað Eiður Þór Árnason skrifar 25. janúar 2026 20:57 Vilhjálmur Árnason, þingmaður og frambjóðandi í leiðtogaprófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, ásamt ungum Sjálfstæðismönnum í Helguvík í gær. Logi Þór Ágústsson Farið var með ungmenni á kjörstað eftir vísindaferð í gær á vegum Vilhjálms Árnasonar, ritara Sjálfstæðisflokksins og frambjóðanda í Reykjanesbæ, þar sem boðið var upp á áfengi. Skipuleggjandi segir fólk hafa verið með lögaldur „eftir [sinni] bestu vitund.“
Logi Þór Ágústsson, formaður Heimis - félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, og Hermann Borgar Jakobsson varaformaður, segjast bera ábyrgð á ferðinni. Þeir eru nánir stuðningsmenn Vilhjálms sem er jafnframt þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hópurinn lagði af stað frá kosningamiðstöð Vilhjálms en í vísindaferðinni í gær voru fyrirtæki og uppbyggingarsvæði heimsótt í Helguvík. Logi segir að ferðin hafi verið haldin af sér og Hermanni „fyrir hann Vilhjálm“ en í kynningarefni var skýrt tekið fram að Vilhjálmur væri að bjóða ungum Sjálfstæðismönnum í vísindaferð. Sömuleiðis er Vilhjálmur skráður skipuleggjandi. Skjáskot af Facebook-viðburðinum sem Viljálmur var einnig skráður fyrir. Logi segir áfengið í ferðinni hafa verið í boði hans og varaformannsins og fólkið sem neytti veiganna „með lögaldur eftir minni bestu vitund.“ Samkvæmt lögum Sambands ungra Sjálfstæðismanna (SUS) er ungmennum niður í fimmtán ára aldur heimilt að skrá sig í undirfélög á borð við Heimi. Vilhjálmur Árnason hefur ekki svarað fyrirspurn fréttastofu um málið. Mikill fjöldi lagði leið sína í Helguvík ásamt Vilhjálmi sem sést hér fremst.Logi Þór Ágústsson Gott að virkja ungt fólk Logi segir að 52 ungir Sjálfstæðismenn hafi mætt í ferðina og rúta lagt af stað frá kosningamiðstöð Vilhjálms. Eftir heimsóknina í Helguvík hafi rúta komið við í Grófinni í Reykjanesbæ þar sem nú er hægt að greiða atkvæði í leiðtogaprófkjörinu í Reykjanesbæ en Vilhjálmur er þar einn þriggja frambjóðenda. „Á leiðinni til baka úr Helguvík vildu nokkrir nýta tækifærið og kjósa utankjörfundar þar sem það var í leiðinni. Rúmlega 10 manns af þeim 50 gerðu það,“ segir Logi. „Það finnst mér frábært enda nauðsynlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að virkja ungt fólk.“ Skýtur á forvera sinn Vísir setti sig upphaflega í samband við Guðna Ívar Guðmundsson sem er skráður formaður Heimis á vef SUS en sá upplýsti fréttamann um að áðurnefndur Logi væri nú búinn að taka við formennsku. Þegar fréttamaður hringdi í Loga til að spyrja hann um ferðina í gær vildi hann lítið segja í fyrstu og óskaði eftir skriflegri fyrirspurn. Í stað þess að svara fréttamanni með beinum hætti birti hann í kjölfarið færslu um málið á Facebook-síðu sinni þar sem hann sakaði ónefndan aðila í kosningastjórn annars frambjóðanda um að siga fréttamanni á sig. „Væntanlega í þeim tilgangi að gera [ferðina] tortryggilega og ná höggi á Vilhjálm Árnason,“ ritar Logi. Þar er að öllum líkindum vísað til áðurnefnds Guðna sem fréttamaður minntist á við Loga. Sjálfur hefur Guðni stigið fram í athugasemd undir Facebook-færslu Loga. „Til að það sé alveg ljóst þá kemur þetta ekki frá framboði Ásgeirs eins og mér heyrist þú vera skrifa, hér eru skilaboð sem mér bárust í dag af fyrrabragði,“ skrifar Guðni og vísar til skjáskots af samskiptum við fréttamann. Þess ber að geta að fréttamaður upplýsti Guðna ekki um efni erindisins áður en hann óskaði eftir því að komast í samband við sitjandi formann félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ. Logi hefur verið upplýstur um þetta en hann hefur ekki leiðrétt yfirlýsingu sína. Ungt fólk skundaði um uppbyggingarsvæðið í Helguvík í gær. Sumt þeirra var með áfengi við hönd. Logi Þór Ágústsson „Ég mun ekki fóðra andstæðinga Sjálfstæðisflokksins eða stuðningsmenn annarra framboða – sem leggjast svona lágt – með efni með því að tjá mig frekar. Ég vona að aðrir frambjóðendur hafi ekki með beinum hætti komið að þessari ömurlegu árás á unga fólkið sem hefur áhuga á því að taka þátt í starfinu,“ segir Logi í Facebook-færslu sinni. Hann telur að um hafi verið að ræða eina fjölmennustu vísindaferð sem haldin hafi verið af ungu fólki í Reykjanesbæ. Færslan sem formaður Heimis birti eftir að hann fékk fyrirspurn frá fréttamanni. Umræddur maður í kosningastjórn mótframbjóðanda Vilhjálms var skráður formaður félagsins. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um Facebook-viðburðinn og til að áretta að Logi hafi ekki tilgreint nafn Guðna í færslu sinni.
Sjálfstæðisflokkurinn Reykjanesbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Innlent Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Innlent Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Erlent Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Innlent Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Innlent Fleiri fréttir „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Sjá meira