„Förum strax í lífsbjargandi aðgerðir“ Samúel Karl Ólason skrifar 26. janúar 2026 19:35 Íbúðin er gjörónýt eftir eldinn. Vísir/Bjarni Kona liggur þungt haldin á gjörgæsludeild eftir að eldur kom upp í íbúð hennar í Reykjanesbæ seint í gærkvöldi. Sjö hundar voru í íbúðinni og drápust en slökkviliðsstjóri segir konuna hafa verið komna í sjúkrabíl innan við tíu mínútum eftir að útkallið barst.
Tilkynningin um eldinn barst til Brunavarna Suðurnesja klukkan sex mínútur í ellefu í gærkvöldi. Eldur hafði kviknað í íbúð í fjölbýlishúsi en sex manns voru í húsinu. Slökkvistöðin er tiltölulega skammt frá húsinu og tók einungis tvær mínútur fyrir fyrstu menn að mæta á vettvang, en allt slökkviliðið var kallað út vegna eldsins. Sjá einnig: Kona þungt haldin og sjö hundar hennar brunnu inni Eyþór Rúnar Þórarinsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna Suðurnesja, sagði í kvöldfréttum að þegar fyrstu menn mættu á staðinn hafi íbúðin verið alelda. „Við sjáum bara eldtungurnar út um svalardyrnar og fáum tilkynningu um að það sé manneskja föst inni. Þannig að við förum strax í lífsbjargandi aðgerðir.“ Hann segir að reykkafarar hafi strax gert sig klára en aðrir í fjölbýlishúsinu hafi verið komnir út af sjálfsdáðum. Reykkafarar fóru inn í íbúðina og náðu konunni út á meðan aðrir slökkviliðsmenn unnu að því að vinna bug á eldtungunum. Eyþór segir þetta hafa gengið vel. Það hafi líklega ekki verið liðnar tíu mínútur eftir að útkallið barst og þar til konan var komin í sjúkrabíl. Þá var hún meðvitundarlaus en með púls. Í kjölfarið hafi gengið fljótt að slökkva eldinn. Eyþór segir íbúðina gjörónýta og að reykskemmdir hafi orðið á öðrum íbúðunum. Slökkviliðsmenn hafi þurft að reykræsta þær allar í nótt. Eins og áður segir dóu sjö hundar í eldsvoðanum. Einn komst þó út úr íbúðinni. Eldsvoðinn er nú í rannsókn hjá lögreglu.
Reykjanesbær Slökkvilið Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira