Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 27. janúar 2026 12:08 Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir blikur á lofti í rekstri samtakanna. Vísir/Anton Brink Stígamót sjá fram á hallarekstur og tóma varasjóði á þessu ári og uppsagnir eru að óbreyttu fram undan að sögn talskonu samtakanna. Á sama tíma er viðvarandi biðlisti eftir þjónustu.
Stígamót sinna ýmsu forvarnarstarfi og ráðgjöf en veita fyrst og fremst þolendum kynferðisofbeldis þjónustu að kostnaðarlausu. Starfsemin er að jafnaði að þriðjungi fjármögnuð af ríkinu, í gegnum rekstrarstyrk frá félagsmálaráðuneyti og verkefnastyrki frá dómsmálaráðuneyti. Sveitarfélög, og þá að lang mestu leyti Reykjavíkurborg, fjármagna innan við tíu prósent en samtökin treysta á framlög frá almenningi til að fjármagna það sem eftir stendur, eða yfir helming rekstrarkostnaðar. Samtök í stöðugri samkeppni Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir reksturinn eilífa baráttu. „Og það er mjög umhugsunarvert að stjórnvöld hafa undirgengist alþjóðasamninga um að styðja við félagasamtök og tryggja ákveðna þjónustu sem að við erum að gera, sem er í rauninni þjónusta sem að sem að hið opinbera á að tryggja að sé til staðar, en fjármagn hefur ekki fylgt,“ segir Drífa og vísar til Istanbúlsamningsins. Stígamót sinna ýmsu forvarnarstarfi og hafa meðal annars staðið fyrir verkefninu Sjúk ást, um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna.vísir/Vilhelm Fjölmörg samtök treysti á almannafé og Drífa segir umhugsunarvert að stöðugt sé verið að etja þeim saman í samkeppni um styrki. Staðan sé nú sérstaklega viðkvæm. „Á þessu ári munum við tæma alla varasjóði ef eitthvað annað kemur ekki til. Og síðan er það þannig að við erum bara með eins árs samning við ríkið, þannig að fyrirsjáanleikinn er enginn.“ Niðurskurður sé að óbreyttu fram undan. „Við erum með mjög litla yfirbyggingu, eins og á við um svona félagasamtök yfir höfuð. Og það þýðir þá náttúrulega bara að fækka starfsfólki. Það er eitthvað sem við getum ómögulega gert þegar við erum með biðlista eftir þjónustunni okkar og það er stöðug ásókn í þjónustuna,“ segir Drífa og bætir við að staðan sé áhyggjuefni. „Hingað kemur fólk þegar það er tilbúið og ef það er ekki gripið þegar það er tilbúið að koma geturðu verið að missa af fólki sem þarf hjálp.“
Kynferðisofbeldi Reykjavík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira