„Móðir allra samninga“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. janúar 2026 11:46 Leiðtogarnir greindu frá samkomulaginu fyrr í dag. Það verður undirritað síðar á árinu, þegar það hefur ratað í gegnum stjórnkerfi Evrópusambandsins. AP/Manish Swarup Nýr fríverslunarsamningur á milli Evrópusambandsins og Indlands er sagður munu leiða til þess að útflutningur aðildarríkjanna til Indlands mun tvöfaldast fyrir árið 2032. Næstum allir tollar verða afnumdir eða lækkaðir verulega, sem mun spara evrópskum fyrirtækjum fjóra milljarða evra.
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins, segir um að ræða sögulegan áfanga. „Við höfum gengið frá móður allra samninga,“ sagði hún í Delhi í dag. „Við höfum skapað fríverslunarsvæði með tvo milljarða íbúa, sem báðir aðilar munu hagnast af.“ Íbúar Indlands telja 1,4 milljarða og samkvæmt Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verður landið fjórða stærsta hagkerfi jarðar á þessu ári. Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, sagði um að ræða stærsta fríverslunarsamning sögunnar. „Þessi samningur mun skapa 1,4 milljörðum Indverja og milljónum Evrópubúa gríðarleg tækifæri,“ sagði leiðtoginn. Um væri að ræða dásamlegt dæmi um það hvernig tvö stærstu hagkerfi heims gætu unnið saman. Tollar á bifreiðar frá framleiðendum á borð við Volkswagen, Renault, Mercedes-Benz og BMW fara í tíu prósent úr allt að 110 prósent á fimm árum, fyrir 250 þúsund bifreiðar. Samningur sem Bretar gerðu við Indverja í fyrra hljóðaði upp á 37 þúsund bifreiða kvóta. Samkvæmt BBC verða ákveðnar vörur undanþegnar samningnum til að standa vörð um innlenda framleiðslu, til að mynda mjólkurvörur, ýmsar kornvörur og ákveðnir ávextir og grænmeti.
Indland Evrópusambandið Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Fleiri fréttir Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Sjá meira