Markvörður Mourinho tryggði liðið áfram og Bodö/Glimt vann í Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. janúar 2026 22:17 Anatoliy Trubin fagnar marki sínu sem tryggði Benfica 4-2 sigur og sæti í umspilinu en þetta var síðasta snerting leiksins. Getty/Jose Manuel Alvarez Rey Anatoliy Trubin, markvörður Benfica, var hetja kvöldins því hann tryggði Benfica 4-2 sigur á Real Madrid með marki á áttundu mínútu í uppbótartíma en markið kom portúgalska liðinu í umspilið því 3-2 sigur hefði ekki dugað.
Franska liðið Marseille sat eftir með sárt ennið því liðið datt út á markatölu en hefði verið inni í umspilinu ef Portúgalarnir hefðu ekki bætt við marki. Norska félagið Bodö/Glimt komst líka áfram með 2-1 útisigri á Atletico Madrid en norska liðið endaði í 23. sæti og 24 komust áfram. Norðmaðurinn Andreas Schjelderup skoraði tvö mörk fyrir Benfica, jafnaði í 1-1 og kom liðinu 3-1 yfir. Vangelis Pavlidis skoraði annað markið úr vítaspyrnu. Kylian Mbappé skoraði bæði mörk Real Madrid, kom liðinu í 1-0 á 30. mínútu og minnkaði svo muninn í 3-2 á 58. mínútu. Benfica stóð af sér stórsókn Real Madrid og fékk síðan aukaspyrnu á áttundu mínútu uppbótartímans. Hér fyrir neðan má sjá hvað gerðist þá. Klippa: Markið mikilvæga hjá markmanni Benfica Jose Mourinho sagði Anatoliy Trubin, markverði liðsins, að hlaupa fram og frábær aukaspyrna Fredrik Aursnes endaði beint á kollinum á honum. Þetta var frábært mark og mark sem kom liðinu áfram í umspilið á kostnað Marseille. Alexander Sörloth kom Atletico Madrid í 1-0 á móti Bodö/Glimt en Fredrik Sjøvold jafnaði fyrir hálfleik. Það var síðan Kasper Waarts Høgh, fyrrum leikmaður Vals, sem skoraði sigurmarkið á 59. mínútu og þetta mark kom liðinu áfram í umspilið.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira