Enn má Daði leiðrétta Benedikt S. Benediktsson skrifar 29. janúar 2026 17:17 Í umræðum um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum á Alþingi, hinn 29. janúar 2026, svaraði fjármála- og efnahagsráðherra spurningu um hvernig ráðherrann ætlaði sér að bregðast við í ljósi fréttaflutnings af aukinni verðbólgu. Í svari ráðherra kom eftirfarandi m.a. fram: „[Þ]að er auðvitað mikið áhyggjuefni að verðbólga sé að hækka. Það er hins vegar mjög mikilvægt að við rýnum þessar tölur og skoðum í grunninn hver ástæðan er. Það hefur orðið töluverð umræða um það, og kemur raunar fram í máli hv. þingmanns, að stjórnarandstaðan hafi varað við áhrifum breytinga á kílómetragjaldi og vörugjöldum af bifreiðum á vísitölu neysluverðs. Nú liggur mat Hagstofu Íslands fyrir og það kemur í ljós að áhrifin eru nákvæmlega í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið spáði og að hækkunin sem er að verða núna á verðbólgu er vegna annarra þátta, þ.e. hækkunar á eldsneytisverðinu sjálfu og álagningar eldsneytis eða annarra slíkra þátta og álagningar á bifreiðar. Það er auðvitað slæmt þegar breytingar eru notaðar til að réttlæta hækkanir.“ Lög og regla Það dylst fáum að með framangreindum orðum fór ráðherra þá leið að frábiðja sér gagnrýni á gerðir eigin ríkisstjórnar og stjórnarmeirihluta með því að benda á aðra meinta sökudólga. Með öðrum orðum skellti ráðherra skuldinni á aðra, gerði þá að blóraböggli eða benti á meintar syndir annarra (e. whataboutism). Þá bætti ráðherra um betur og gaf til kynna að niðurstaðan hefði að verið í samræmi við væntingar og mat ráðuneytis hans. Það er ekki laust við að manni verði hugsað til texta viðlagsins í „Lög og regla“ eftir Bubba Morthens. Þetta var ekki ég, þetta voru bílasalarnir! Í tilefni af ásökun ráðherra gagnvart söluaðilum ökutækja er rétt að benda á eftirfarandi: Undirritaður fékkst nýverið við það verkefni að benda ráðherra penlega á að skýring sem hann veitti í fréttaviðtali um sama málefni ætti sér ekki stoð í raunveruleikanum.1 Þegar ráðuneyti ráðherrans bað efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis að hækka vörugjöld af ökutækjum var tekið fram að breytingar í samræmi við tillögu ráðuneytisins mundu hafa í för með sér 0,1% hækkun á vísitölu neysluverðs.2 SVÞ og Bílgreinasambandið sendu nefndinni m.a. þá ábendingu að áhrifin væru vanmetin.3 Í mati ráðuneytisins um vörugjaldsbreytingar mundu hafa í för með sér 0,1% hækkun á vísitölu neysluverðs er tekið fram að „[m]eð því að aðlaga breytingarnar að kaupmynstri heimilanna eru áhrifin lágmörkuð […]. Framar í minnisblaðinu, á bls. 2, er fjallað um markmið vörugjaldabreytingarinnar og þar segir m.a.: „Í Ijósi þess að um 60% af nýskráðum fólksbílum heimila eru rafmagnsbílar, eru áhrifin á heimili og fjölskyldur lágmörkuð. Þá má gera ráð fyrir að aukin tekjuöflun ríkissjóðs dragi úr þenslu í hagkerfinu og þar með almennum verðbólguþrýstingi.“ Í þessu samhengi er rétt að taka fram að þó ráðuneyti ráðherrans vilji horfa til hegðunarbreytinga í tengslum við breytingu á skattlagningu þá verður sá vilji ekki þess valdandi að mælingar Hagstofu Íslands breytist. Í skýringum Hagstofunnar kemur nefnilega fram að þar á bæ sé mælingum á bílum skipt í þrjá flokka, rafmagnsbíla, tvinnbíla og bensín- og dísilbíla og til að lágmarka áhrif sveiflna í innflutningi hafi verið notað þriggja ára meðaltal nýskráninga til að ákvarða hlutföll. Í öllu byggði því mat ráðuneytis ráðherrans, sem hann segir í þokkabót að hafi staðist fyllilega, á óskhyggju en ekki mæliaðferðum Hagstofunnar. Matið skilaði því ekki aðeins rangri niðurstöðu heldur getur ekki verið að það hafi staðist. Við meðferð efnahags- og viðskiptanefndar á beiðni ráðuneytis ráðherrans um breytingu á vörugjöldum varð ljóst að ekki hafði verið tekið tillit til breytinga sem hafa orðið á aðferðarfræði við prófun tengiltvinnbifreiða sem leiðir til hærri skattlagningar. Á þetta bentu SVÞ og Bílgreinasambandið.4 Ráðuneytið sendi nefndinni í kjölfarið minnisblað, taldi hugmyndir SVÞ og Bílgreinasambandsins óþarfar en stakk þó að nefndinni hugmynd að því hvernig mætti koma til móts við sjónarmið þeirra. Nefndin ákvað hins vegar að bregðast lítt við. Það er dagljóst að upphaflegt mat ráðuneytisins á áhrifum á vísitölu neysluverðs gat með tilliti til framangreinds ekki staðist enda hafði það ekki áttað sig á áhrifum prófunaraðferðarbreytinganna þegar beiðninni var komið á framfæri við efnahags- og viðskiptanefnd. Í frétt á vef Hagstofu Íslands er eftirfarandi enda tekið fram: „Um áramótin voru gerðar ýmsar breytingar á gjöldum tengdum ökutækjum sem höfðu áhrif á vísitölu neysluverðs.“ Það þarf varla að rekja frekar að þegar ráðherra benti á aðra beindust a.m.k. fjórir fingur á honum sjálfum. Þetta var ekki ég þetta voru olíufélögin! Samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2% síðastliðna tólf mánuði og hækkaði hún um 0,38% á milli mánaða. Í fréttinni er stiklað á stóru m.t.t. undirliða sem tóku milli mánaða breytingum og m.a. tekið fram að bensínverð hafi lækkað um 27,4%, dísilverð um 24,2% en veggjöld hækkað um 633,4% vegna kílómetragjalds. Í tilefni af ásökun ráðherra gagnvart söluaðilum eldsneytis er rétt að benda á eftirfarandi: Samantekið lækkaði sjálf vísitala neysluverðs um 0,94% vegna breytinga á eldsneytisverði. Hins vegar hækkaði vísitalan meira, eða um 0,99% vegna hækkunar kílómetragjalds. Í áhrifamati greinargerðar frumvarps til laga um kílómetragjald var tekið fram að áhrif kílómetragjaldsins mundu hafa áhrif á vísitölu neysluverðs til hækkunar en afnám olíugjalds og vörugjalda á eldsneyti mundi hins vegar hafa áhrif til lækkunar. Þá sagði: „Gert er ráð fyrir að heildarbreytingin hafi óveruleg áhrif á vísitölu neysluverðs eða u.þ.b. 0–0,1% hækkun á vísitölunni.“ Það vill svo til að sú hækkun vísitölu neysluverðs, 0,05%, sem í frétt Hagstofunnar er sögð hafa orðið vegna upptöku kílómetragjald og niðurfellingar eldsneytisgjalda er mitt á milli þeirrar 0% og 0,1% hækkunar á vísitölunni sem ráðherra vænti. Ráðherra sló því naglann nánast lóðbeint á höfuðið í þessu tilliti þegar hann sagði hækkunina í samræmi við væntingar hans og ráðuneytis hans. Það sætir því furðu að ráðherra hafi af einhverjum orsökum talið tilefni til að halda því fram að það sé orsök hækkandi verðbólgu að álagning hafi aukist hjá söluaðilum eldsneytis. Eftir eftirgrennslan komst skrifstofa SVÞ að því að útreikningar ráðuneytis ráðherrans, sem væntanlega eiga að gefa þá niðurstöðu að álagning söluaðila eldsneytis hafi hækkað, eru byggðir á afar sérstökum forsendum. Til grundvallar er nefnilega lögð svokölluð fastskattavísitala neysluverðs sem sýnir mat á breytingum á vísitölu neysluverðs ef ekki hefðu orðið breytingar á tilteknum sköttum, þ. á m. hinum niðurfelldu eldsneytissköttum. Í engu er tekið tillit til þess að hvorki kolefnisgjald né niðurfelldu eldsneytisskattarnir eru eða hafa verið lagðir á íblöndunarefni sem samkvæmt lögum er skylt að blanda í eldsneyti áður en það er selt til neytenda. Líkast til er þessi mælikvarði sem ráðuneytið styðst við því haldinn ágalla og niðurstöðurnar þess því vafasamar Það þarf varla að rekja frekar að þegar ráðherra benti á aðra beindust a.m.k. fjórir fingur á honum sjálfum, aftur. Að handboltanum Góður íþróttamaður sagði eitt sinn: „Hvaðan kom hann, hvert er hann að fara. Hver er hann?“ Ég geri þennan endapunkt að mínum en spyr um ráðherrann en ekki Alexander Petersen. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikt S. Benediktsson Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar