Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 30. janúar 2026 13:05 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra beinir því til olíufélaga að passa sig. Það hitni undir þeim því eldsneytislækkanir séu ekki í takt við aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Vísir Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi búist við meiri lækkunum á eldsneytisverði hjá olíufélögunum samfara því að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður um áramótin. Þau þurfi að passa sig. Ríkisstjórnin ætli að ná hallalausum fjárlögum til að ná tökum á verðbólgunni.
Líkt og greint var frá í gær mælist verðbólga nú 5,2 prósent og hefur ekki verið meiri frá því í september árið 2024. Það sem hafði mest áhrif á vísitölu neysluverðs voru breytingar á vörugjöldum bifreiða og upptaka nýs kílómetragjalds. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur lagði áherslu á lækkun vaxta í stefnuyfirlýsingu sinni þegar hún tók við. Þá kom fram í aðsendri grein á Vísi að Kristrún ætlaði sér að negla niður vexti. Aðspurð um að aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafi áhrif á verðbólguna nú svarar Kristrún: „Markmiðið er að ná verðbólgunni niður með langvarandi hætti. Ekki mælingu í eitt skipti vegna þess að við treystum okkur ekki til þess að fara í erfiðar ákvarðanir sem muni laga afkomuna. Já ég ég geri mér alveg grein fyrir að hluti af meiri verðbólgu nú er er að koma til vegna þess að við erum að loka gatinu hjá ríkissjóði. Við erum að treysta tekjugrunn og gera afkomuna sjálfbærari.“ Heit olíufélög Fjármálaráðherra vísaði gagnrýni sem kom fram á Alþingi í gær um að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar á bug og sagði olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina. Kristrún tekur í sama streng. „Við sjáum það á tölunum að lækkun á eldsneytisverði er ekki að mæta að fullu þeirri lækkun sem við bjuggumst við miðað við okkar lækkanir. Þannig að ég set að hluta til ábyrgð á olíufélögin hvað það varðar. Þau þurfa að passa sig þegar kemur að verðlagningu. Ég veit að þau finna hitann af því og ég treysti því að þau geri þetta með sanngjörnum hætti,“ segir Kristrún. Allir þurfi að leggjast á árarnar Hún hvetur einnig atvinnulífið til að halda að sér höndum í verðlagningu í baráttunni við verðbólguna. „Ég hvet alla aðila sem koma að verðlagningu í kerfinu að finna til ábyrðar. Það á við um fyrirtæki, vinnumarkað og ríkisstjórnina, við þurfum að standa okkur,“ segir Kristrún. Í síðustu Stöðugleikasamningum kom fram að væri verðbólga yfir 4,7 prósentum næsta sumar væru forsendur þeirra brostnar. Kristrún vonar að verðbólgan muni hjaðna á næstu mánuðum. „Mikilvægast núna er að við höldum plani. Við erum með áætlun um að reka ríkissjóð með sjálfbærum hætti strax á næsta ári. Það skiptir miklu máli að við höldum okkur við það plan í fjármálaáætlun. Ég bind vonir við að verðbólgumælingar muni batna,“ segir Kristrún.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bensín og olía Neytendur Verðlag Íslenska krónan Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Innlent Fleiri fréttir Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Sjá meira