Bensín og olía
1 2 3 4 5 6 … 20 ›
Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Forseti Kúbu segir ríkisstjórn landsins eiga í viðræðum við ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum. Þessum viðræðum sé ætlað að bæta samskipti ríkjanna og finna lausnir á því hvernig þau geti unnið saman. Bandaríkjamenn hafa komið í veg fyrir olíuflutninga til Kúbu og hefur verulega slæmt efnahagsástand þar versnað til muna. Erlent 13.3.2026 14:51
Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð ASÍ hefur þungar áhyggjur af hækkunum á bensínverði og áhrifum þeirra á veðbólgu. Álagning olíufélaga hafi verið í sögulegu hámarki og afkoma þeirra sterk. Engar forsendur séu fyrir því að hleypa hækkunum á heimsmarkaðsverði að fullu út í verðlag og stjórnvöldum beri að sýna aðhald. Viðskipti innlent 13.3.2026 13:38
Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Starfsmenn Strandgæslu Svíþjóðar (Kustbevakningen) og sænskir sérvseitarmenn gerðu í gær áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra „Skuggaflotanum“ svokallaða. Þetta er í annað sinn á viku sem Svíar stöðva skip úr þessum flota en Rússar nota hann til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Erlent 13.3.2026 10:27
Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Stjórnvöld í Washington eru sögð hafa misreiknað sig verulega við skipulagningu aðgerðanna gegn Íran og ekki gert ráð fyrir því að þarlend yfirvöld myndu reynast viljug til að loka Hormuz-sundi. Erlent 13.3.2026 07:53
Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi „Þegar að heimsmarkaðurinn lækkar, þá virðist verðið svona síga niður eins og það sé verið að sleppa fjöður lausri, en þegar að verð hækkar, þá fer það frekar upp eins og raketta,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifereiðaeigenda. Hann mætti í sett kvöldfrétta Sýnar í kvöld. Viðskipti innlent 12.3.2026 21:15
Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran Eldsneytisverð gæti verið allt að tuttugu krónum lægra en það er er ef olíufélögin færðu álagningu sína nær langtímameðaltali. Greining stéttarfélagsins Visku bendir til þess að olíufélögin séu fjórfalt líklegri til þess að skila hækkunum til neytenda en lækkunum. Viðskipti innlent 12.3.2026 08:35
Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. Erlent 11.3.2026 14:48
Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur. Viðskipti erlent 11.3.2026 10:32
Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 11.3.2026 08:52
Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. Erlent 10.3.2026 13:39
Hormuz sund og Ísland Hormuz sund við Persaflóa er merkilegur staður. Í gegnum þetta sund fara um 20% af olíu og fljótandi gasi sem notað er á heimsvísu. Flutningar um sundið hafa heldur betur hikstað undanfarið af augljósum ástæðum. Þessi staða hefur snarhækkað heimsmarkaðsverð á olíu og gasi með tilheyrandi verðbólguþrýstingi. Skoðun 10.3.2026 12:03
Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hringdi í Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, í gær og ræddu þeir saman í klukkutíma. Meðal umræðuefna voru stríðið gegn Íran, Venesúela, staðan á olíumarkaði og stríð Rússa í Úkraínu. Erlent 10.3.2026 08:10
Vaxandi ótti við langvarandi átök Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð. Erlent 9.3.2026 19:23
Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Hráolíuverð hefur ekki verið hærra í fjögur ár en við opnun markaða í morgun kostaði tunnan ríflega hundrað bandaríkjadali. Frekari hækkanir gætu orðið ef stríðið dregst á langinn. Innlent 9.3.2026 12:14
Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stríðið við Íran aðeins munu enda með sameiginlegri ákvörðun hans og Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, um að láta af árásum á landið. Erlent 9.3.2026 06:42
Stríðið í Íran er forskrift að leiðindum á mörkuðum Fjárfestar nefna reglulega geopólitík sem vaxandi áhættu fjármálamarkaða og virðast hafa gert það með réttu. Stigmögnun stríðsátaka á milli Írans og bandalagsþjóðanna Ísraels og Bandaríkjanna hefur valdið því að orkuverð hækkar hratt og bæði hlutabréfa- og skuldabréfamarkaðir hafa lækkað á sama tíma. Umræðan 7.3.2026 09:08
Skipti ekki máli hvaðan olían er Framkvæmdastjóri N1 segir mikilvægt að umræða um verðlag á eldsneyti og áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu hér á landi byggi á staðreyndum. Olíufélögin hafa verið nokkuð gagnrýnd vegna verðhækkana í kjölfar árása á Íran, meðal annars af þingmanni og FÍB. Viðskipti innlent 6.3.2026 14:44
Skel metið á „hálfvirði“ í samanburði við önnur félög í smásölu og þjónustu Markaðsgengi Skel er um þrjátíu prósent lægra en jafngildir innra virði þess, sem má meðal annars rekja til óvissu um virði óskráðra eigna, en í nýrri greiningu er fjárfestingafélagið sagt verulega vanmetið á markaði. Þar er þeirri spurningu velt upp hvort munurinn í verðlagningu á Skel borið saman við önnur skráð félög sem starfa í smásölu og þjónustu „eigi að vera svona gríðarlega mikill“ en fjárfestingafélagið er í þeim samanburði á tæplega „hálfvirði“ miðað við það sem reksturinn skilar hluthöfum í hagnað. Innherji 4.3.2026 12:20
Viðskipti í Suður-Kóreu stöðvuð eftir hlutabréfadýfu Viðskipti á hlutabréfamarkaðnum í Suður-Kóreu voru stöðvuð í 20 mínútur í morgun, þegar hlutabréfaverð féll um meira en átta prósent. Viðskipti erlent 4.3.2026 07:20
Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Hernaðaryfirvöldum í Íran annars vegar og Bandaríkjunum hins vegar ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi. Íranir sögðust í gær hafa fulla stjórn á skipaumferð um sundið og að allir sem fær þar um ættu á hættu að verða fyrir árásum eldflauga eða dróna. Erlent 4.3.2026 06:40
Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á ólíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri. Viðskipti innlent 3.3.2026 23:25
Hagkerfið allt í hættu „Það þarf að hafa verulegar áhyggjur því þetta mun hafa gríðarlegar afleiðingar,“ segir Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs um þær hækkanir sem hafa orðið á heimsmarkaðsverði olíu síðustu daga vegna átakanna í Íran. Viðskipti innlent 3.3.2026 13:12
Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði töluvert í morgun vegna átaka tengdra Íran og röskunar á olíuflutningi frá Persaflóasvæðinu. Viðskipti erlent 3.3.2026 11:33
Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Tengiltvinnbílar nota mun meira eldsneyti en framleiðendur slíkra bíla hafa viljað gangast við samkvæmt umfangsmikilli rannsókn á um milljón tengiltvinnbílum. Erlent 18.2.2026 23:40
Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að Homuz-sundi hafi verið lokað og það yrði lokað í nokkrar klukkustundir vegna heræfinga. Eldflaugum hefur verið skotið út á sundið í þessum æfingum, sem eru haldnar á sama tíma og bandarískir og íranskir erindrekar funda í Genf. Bandaríkjamenn hafa hótað árásum á Íran, semji klerkastjórnin ekki um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni. Erlent 17.2.2026 12:13
Rífleg eiginfjárstaða skapar svigrúm til verulegs vaxtar hjá Festi Festi ræður yfir talsverðu umfram eigin fé um þessar mundir sem stjórnendur horfa til að geta nýtt í „verulegan“ innri og ytri vöxt en í nýrri greiningu er fjárfestum ráðlagt að halda stöðu sinni í smásölufélaginu óbreyttri, enda þótt verðmatsgengið sé hækkað nokkuð. Undir lok síðasta árs fór dótturfélagið Elko að hasla sér völl í lánastarfsemi og útlit er fyrir hraðan vöxt þar á þessu ári. Innherji 14.2.2026 13:11
Bensíni hellt á verðbólgubálið Hagstofan birti nýverið verðbólgutölur fyrir janúar sem ollu miklum vonbrigðum. Verðbólgan hækkaði um 0,38% á milli mánaða og mælist nú 5,2% á ársgrundvelli – það hæsta frá því í september 2024. Skoðun 3.2.2026 07:02
Olíusjóðurinn bætir við sig í íslenskum verðbréfum fyrir um tuttugu milljarða Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, bætti verulega við stöðu sína í íslenskum ríkisskuldabréfum á liðnu ári en umfang verðbréfaeignar sjóðsins hér á landi er að nálgast sömu slóðir og þegar mest var fyrir tveimur áratugum. Innherji 31.1.2026 12:54
„Mjög áhugaverð umræða“ Olíufélögin hafa brugðist illa við málflutningi ríkisstjórnarinnar sem hefur sagt þau bera að ábyrgðar vegna aukinnar verðbólgu. Framsetningin sé villandi og standist ekki skoðun. Innlent 30.1.2026 22:25
Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn „Það er beinlínis villandi fyrir neytendur að benda á olíufélögin sem sökudólg fyrir aukinni verðbólgu. Ekki aðeins var öllu olíugjaldinu skilað til neytenda heldur hefur álagning á eldsneyti N1 haldist óbreytt frá síðasta ári.“ Innlent 30.1.2026 14:38