Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. janúar 2026 14:38 Magnús Hafliðason er framkvæmdastjóri N1. vísir/aðsend „Það er beinlínis villandi fyrir neytendur að benda á olíufélögin sem sökudólg fyrir aukinni verðbólgu. Ekki aðeins var öllu olíugjaldinu skilað til neytenda heldur hefur álagning á eldsneyti N1 haldist óbreytt frá síðasta ári.“ Þetta segir í yfirlýsingu frá N1 sem Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1, er merktur fyrir. Yfirlýsingin var send fréttastofu í kjölfar frétta um aukna verðbólgu. Verðbólga mælist nú 5,2 prósent og hefur ekki verið meiri frá því í september 2024. Það sem hafði mest áhrif á vísitölu neysluverðs voru breytingar á vörugjöldum bifreiða og upptaka nýs kílómetragjalds. Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, hefur vísað því á bug að aukningin skýrist af gjaldhækkunum ríkisstjórnarinnar og sagði olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina vegna aukinnar álagningar. Greint var frá því fyrr í mánuðinum að samkvæmt nýrri samantekt ASÍ hafi álagning olíufélaganna aldrei verið hærri en núna. Eldsneytisverð lækkaði um tæplega 97 krónur við áramótin þegar kílómetragjaldið tók gildi. Að mati ASÍ hefði það mátt lækka enn frekar. Forsætisráðherra tók undir málflutning Daða í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Þau hafi búist við frekari lækkunum á eldsneytisverði samfara því að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður um áramótin. Olíufélögin eigi að passa sig. „Þannig að ég set að hluta til ábyrgð á olíufélögin hvað það varðar. Þau þurfa að passa sig þegar kemur að verðlagningu. Ég veit að þau finna hitann af því og ég treysti því að þau geri þetta með sanngjörnum hætti,“ sagði Kristrún. Magnús segir í yfirlýsingu sinni að N1 hafi lækkað verð á bensíni og dísilolíu meira en sem nemur niðurfellingu olíugjaldsins. „Var þessi lækkun umfram það sem FÍB hafði gert ráð fyrir í sínum útreikningum, sem sýnir fram á að samkeppnin á eldsneytismarkaði á Íslandi er virk. N1 gekk því lengra en efni stóð til og skilaði öllum ávinningnum til viðskiptavina - þvert á það sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum,“ segir í yfirlýsingu Magnúsar. Hann bendir á að bensínverð hafi lækkað um 27,4 prósent á milli mánaða í verðbólgumælingum Hagstofu Íslands. Hann ítrekar að álagning hjá N1 hafi haldist óbreytt frá síðasta ári. „Daglegt verkefni þjónustufyrirtækja, eins og N1, er að halda aftur af verðhækkunum með hagræðingu, nýjum lausnum og útsjónarsemi í innkaupum. Starfsfólk N1 finnur til ábyrgðar í baráttunni gegn verðbólgu og fyrir auknum stöðugleika. Enginn árangur næst í þeirri baráttu með órökstuddum ásökunum ráðamanna.“ Yfirlýsingu N1 má lesa hér fyrir neðan: N1lækkaði um síðustu áramót verð á bensíni og dísilolíu meira en sem nam niðurfellingu olíugjaldsins, þegar kílómetragjald var tekið upp. Var þessi lækkun umfram það sem FÍB hafði gert ráð fyrir í sínum útreikningum, sem sýnir fram á að samkeppnin á eldsneytismarkaði á Íslandi er virk. N1 gekk því lengra en efni stóð til og skilaði öllum ávinningnum til viðskiptavina - þvert á það sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Þetta mátti meðal annars sjá í nýjum verðbólgumælingum Hagstofu Íslands þar sem bensínverð lækkaði um 27,4% milli mánaða. Það er beinlínis villandi fyrir neytendur að benda á olíufélögin sem sökudólg fyrir aukinni verðbólgu. Ekki aðeins var öllu olíugjaldinu skilað til neytenda heldur hefur álagning á eldsneyti N1 haldist óbreytt frá síðasta ári. Daglegt verkefni þjónustufyrirtækja, eins og N1, er að halda aftur af verðhækkunum með hagræðingu, nýjum lausnum og útsjónarsemi í innkaupum. Starfsfólk N1 finnur til ábyrgðar í baráttunni gegn verðbólgu og fyrir auknum stöðugleika. Enginn árangur næst í þeirri baráttu með órökstuddum ásökunum ráðamanna. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bensín og olía Neytendur Verðlag Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira
Þetta segir í yfirlýsingu frá N1 sem Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1, er merktur fyrir. Yfirlýsingin var send fréttastofu í kjölfar frétta um aukna verðbólgu. Verðbólga mælist nú 5,2 prósent og hefur ekki verið meiri frá því í september 2024. Það sem hafði mest áhrif á vísitölu neysluverðs voru breytingar á vörugjöldum bifreiða og upptaka nýs kílómetragjalds. Daði Már Kristófersson, fjármála og efnahagsráðherra, hefur vísað því á bug að aukningin skýrist af gjaldhækkunum ríkisstjórnarinnar og sagði olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina vegna aukinnar álagningar. Greint var frá því fyrr í mánuðinum að samkvæmt nýrri samantekt ASÍ hafi álagning olíufélaganna aldrei verið hærri en núna. Eldsneytisverð lækkaði um tæplega 97 krónur við áramótin þegar kílómetragjaldið tók gildi. Að mati ASÍ hefði það mátt lækka enn frekar. Forsætisráðherra tók undir málflutning Daða í dag að loknum ríkisstjórnarfundi. Þau hafi búist við frekari lækkunum á eldsneytisverði samfara því að eldsneytisgjöld og vörugjöld á bensíni voru felld niður um áramótin. Olíufélögin eigi að passa sig. „Þannig að ég set að hluta til ábyrgð á olíufélögin hvað það varðar. Þau þurfa að passa sig þegar kemur að verðlagningu. Ég veit að þau finna hitann af því og ég treysti því að þau geri þetta með sanngjörnum hætti,“ sagði Kristrún. Magnús segir í yfirlýsingu sinni að N1 hafi lækkað verð á bensíni og dísilolíu meira en sem nemur niðurfellingu olíugjaldsins. „Var þessi lækkun umfram það sem FÍB hafði gert ráð fyrir í sínum útreikningum, sem sýnir fram á að samkeppnin á eldsneytismarkaði á Íslandi er virk. N1 gekk því lengra en efni stóð til og skilaði öllum ávinningnum til viðskiptavina - þvert á það sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum,“ segir í yfirlýsingu Magnúsar. Hann bendir á að bensínverð hafi lækkað um 27,4 prósent á milli mánaða í verðbólgumælingum Hagstofu Íslands. Hann ítrekar að álagning hjá N1 hafi haldist óbreytt frá síðasta ári. „Daglegt verkefni þjónustufyrirtækja, eins og N1, er að halda aftur af verðhækkunum með hagræðingu, nýjum lausnum og útsjónarsemi í innkaupum. Starfsfólk N1 finnur til ábyrgðar í baráttunni gegn verðbólgu og fyrir auknum stöðugleika. Enginn árangur næst í þeirri baráttu með órökstuddum ásökunum ráðamanna.“ Yfirlýsingu N1 má lesa hér fyrir neðan: N1lækkaði um síðustu áramót verð á bensíni og dísilolíu meira en sem nam niðurfellingu olíugjaldsins, þegar kílómetragjald var tekið upp. Var þessi lækkun umfram það sem FÍB hafði gert ráð fyrir í sínum útreikningum, sem sýnir fram á að samkeppnin á eldsneytismarkaði á Íslandi er virk. N1 gekk því lengra en efni stóð til og skilaði öllum ávinningnum til viðskiptavina - þvert á það sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Þetta mátti meðal annars sjá í nýjum verðbólgumælingum Hagstofu Íslands þar sem bensínverð lækkaði um 27,4% milli mánaða. Það er beinlínis villandi fyrir neytendur að benda á olíufélögin sem sökudólg fyrir aukinni verðbólgu. Ekki aðeins var öllu olíugjaldinu skilað til neytenda heldur hefur álagning á eldsneyti N1 haldist óbreytt frá síðasta ári. Daglegt verkefni þjónustufyrirtækja, eins og N1, er að halda aftur af verðhækkunum með hagræðingu, nýjum lausnum og útsjónarsemi í innkaupum. Starfsfólk N1 finnur til ábyrgðar í baráttunni gegn verðbólgu og fyrir auknum stöðugleika. Enginn árangur næst í þeirri baráttu með órökstuddum ásökunum ráðamanna.
N1lækkaði um síðustu áramót verð á bensíni og dísilolíu meira en sem nam niðurfellingu olíugjaldsins, þegar kílómetragjald var tekið upp. Var þessi lækkun umfram það sem FÍB hafði gert ráð fyrir í sínum útreikningum, sem sýnir fram á að samkeppnin á eldsneytismarkaði á Íslandi er virk. N1 gekk því lengra en efni stóð til og skilaði öllum ávinningnum til viðskiptavina - þvert á það sem haldið hefur verið fram í fjölmiðlum. Þetta mátti meðal annars sjá í nýjum verðbólgumælingum Hagstofu Íslands þar sem bensínverð lækkaði um 27,4% milli mánaða. Það er beinlínis villandi fyrir neytendur að benda á olíufélögin sem sökudólg fyrir aukinni verðbólgu. Ekki aðeins var öllu olíugjaldinu skilað til neytenda heldur hefur álagning á eldsneyti N1 haldist óbreytt frá síðasta ári. Daglegt verkefni þjónustufyrirtækja, eins og N1, er að halda aftur af verðhækkunum með hagræðingu, nýjum lausnum og útsjónarsemi í innkaupum. Starfsfólk N1 finnur til ábyrgðar í baráttunni gegn verðbólgu og fyrir auknum stöðugleika. Enginn árangur næst í þeirri baráttu með órökstuddum ásökunum ráðamanna.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Bensín og olía Neytendur Verðlag Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira