„Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 31. janúar 2026 13:32 Alfreð Gíslason var léttur í lund í morgunsárið þrátt fyrir lítinn svefn. vísir/vilhelm Alfreð Gíslason er kominn með Þýskaland í úrslitaleik EM og hann var eftirsóttur maður á viðtalssvæðinu í Boxen í gær. Hann sagðist hafa átt fína nótt. „
Hún var bara notaleg. Ég var að klippa til svona hálf fjögur og byrjaði aftur sjö í morgun. Einhvern veginn er það auðveldara þegar maður er að vinna. Það er skrítið,“ sagði Alfreð laufléttur í morgunsárið. Klippa: Alfreð hefur staðið í ströngu Alfreð var á fundinum er Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu, hellti úr skálum reiði sinnar í garð EHF en hvað finnst honum um þessa gagnrýni? „Auðvitað er það þannig að þeir sem voru í hinum riðlinum voru í léttari riðli en álagið í lokin var aftur á móti mun meira. Það var líka þannig með Ísland eins og Króatíu. Þetta er ekki gott fyrirkomulag en menn vissu þetta fyrir meira en hálfu ári síðan og hefðu átt að mótmæla þá. Mér skilst annars að Svíarnir hafi viljað byrja seinna til að spara kostnað.“ Það var pressa á Alfreð strax fyrir mót því þá kom meðal annars fram hjá formanni þýska sambandsins að staða Alfreðs væri ekki örugg. Ekki beint þægilegt veganesti inn í mótið en það truflaði Alfreð lítið. Getur hver sem er sagst vera sérfræðingur „Mér var nákvæmlega sama um þetta allt saman. Ég er með samning til 2027 og hann er þannig að þeir geta sagt mér upp hvenær sem er en þá verða þeir að borga upp samninginn. Ég get líka sagt upp hvenær sem er og byrjað daginn eftir með annarri þjóð. Ég er að vinna fyrir þetta lið sem ég hef verið að byggja upp frá grunni. Þannig að ég er ekki að velta mér upp úr þessu,“ segir Alfreð en hann átti samtal við formanninn sem vildi meina að orð hans hefðu verið tekin úr samhengi. „Umfjöllunin í Þýskalandi hefur samt verið að breytast mikið. Þetta er allt einhverjir áhrifavaldar og hlaðvarpsstjórnendur sem vita ekkert um þetta. Það er nóg að kaupa sér myndavél og hljóðnema og þykjast vera sérfræðingur.“
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira