Gidsel gefur lítið fyrir tuð Þjóðverja Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. janúar 2026 21:20 Mathias Gidsel og félagar í danska handboltalandsliðinu geta orðið Evrópumeistarar á morgun, í fyrsta sinn í fjórtán ár. getty/Sina Schuldt Mathias Gidsel, markahæsti leikmaður Evrópumótsins í handbolta, segir að stuðningsmönnum Danmerkur sé frjálst að styðja liðið á þann hátt sem þeir kjósi.
Danmörk mætir Þýskalandi í úrslitaleik EM í Jyske Bank Boxen í Herning á morgun. Danir unnu Íslendinga í undanúrslitunum í gær, 31-28, á meðan Þjóðverjar unnu Króata með sömu markatölu. Í þýskum fjölmiðlum hefur borið á gagnrýni á að stuðningsmenn Danmerkur bauli og blístri þegar andstæðingurinn er í sókn. Einhverjum Þjóðverjum þykir þetta lýsa vanvirðingu í garð mótherjans. Gidsel gefur lítið fyrir þá gagnrýni. „Þetta fylgir þessu. Það er bara af því að þeir eru að styðja okkur og svona á þetta að vera í íþróttum. Fyrirgefðu en ég skil þetta bara alls ekki,“ sagði Gidsel. „Ég skil ekki alveg umræðuna. Svona er að vera á útivelli. Við erum í Danmörku og höllin er nánast full af Dönum. Ég yrði leiður ef þeir styddu ekki landsliðið sitt af fullum krafti.“ Miklu verra í Þýskalandi Gidsel spilar í Þýskalandi, með Füchse Berlin, og segir að þar láti stuðningsmenn miklu verr. „Ég er vanur að spila í þýsku deildinni og þar er þetta miklu verra. Og svona á það að vera. Þegar ég spila í Flensburg, Kiel eða Magdeburg eiga stuðningsmenn þeirra að sjálfsögðu að setja pressu á mig, því ég spila ekki fyrir þá,“ sagði Gidsel og bætti því við að hann og félagar hans í danska landsliðinu hefðu aldeilis fengið að heyra það þegar þeir mættu Þýskalandi í Köln í undanúrslitum á EM fyrir tveimur árum. Gidsel skoraði sjö mörk í leiknum gegn Íslandi á föstudaginn og hefur alls gert 61 mark á EM, líkt og Portúgalinn Francisco Costa. Hann spilar þó ekki fleiri leiki á mótinu. Úrslitaleikur Danmerkur og Þýskalands hefst klukkan 17:00 á morgun og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Enski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira