Markakóngur á fimmta stórmótinu í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 14:33 Mathias Gidsel fagnar hér verðlaunum sínum sem hann fékk á Evrópumótinu um helgina. EPA/HENNING BAGGER Mathias Gidsel fór hlaðinn verðlaunum af Evrópumótinu í handbolta sem lauk um helgina, ekki í fyrsta skiptið. Þetta var fimmta stórmótið í röð þar sem Gidsel er markakóngur, þriðja stórmótið í röð þar sem hann er valinn mikilvægasti leikmaðurinn og áttunda stórmótið í röð þar sem hann er annaðhvort valinn besti leikmaður mótsins eða besta hægri skyttan. Danir hafa unnið fjögur stórmót í röð og eru nú handhafar allra þriggja stóru titlanna. Gidsel er líka handhafi allra stóru verðlaunanna frá þessum mótum, markakóngstitilsions og besti maður mótsins. Gidsel skoraði 68 mörk á nýloknu Evrópumóti sem var nýtt markamet á einu EM. Hann varð einnig í öðru sæti í stoðsendingum á eftir Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. Gidsel gaf 56 stoðsendingar sem þýddi að hann kom alls að 124 mörkum í níu leikjum á mótinu. Það gera 13,8 mörk í leik og meira en á HM í fyrra þegar hann kom alls að 119 mörkum eða 13,3 að meðaltali í leik. Gísli sá þó til þess að Gidsel náði ekki að verða stoðsendingahæstur á þriðja stórmótinu í röð. Gidsel hefur alls tekið þátt í átta stórmótum með danska landsliðinu og unnið verðlaun á þeim öllum, fimm gull, tvö silfur og eitt brons. Hann hefur alls skorað 441 mark í 67 leikjum og gefið 313 stoðsendingar. Það gera 754 sköpuð mörk á stóra sviðinu. Það magnaða við þessa tölfræði er að Gidsel hefur aðeins skotið 580 sinnum á markið og hann tekur ekki vítaskot. Hann er að spila fyrir utan en er samt með 76 prósent skotnýtingu i þessum 67 leikjum. Gidsel hefur fimm sinnum verið kosinn besti leikmaðurinn og hann hefur fimm sinnum verið markakóngur. Það ótrúlegasta við þetta allt saman er að Gidsel er að ná þessu öllu fyrir 27 ára afmælið sitt sem er 8. febrúar næstkomandi. Hans bestu ár sem handboltamaður ættu því að vera eftir enda hefur hann komið að fleiri mörkum á hverju móti síðustu þrjú mót og er því enn að bæta sinn leik. Átta stórmót Mathias Gidsel: HM 2021: Gull + úrvalslið ÓL 2021: Silfur + Bestur EM 2022: Brons + Úrvalslið HM 2023: Gull + Bestur + Markakóngur EM 2024: Silfur + Úrvalslið + Markakóngur ÓL 2024: Gull + Bestur + Markakóngur + Stoðseningahæstur HM 2025: Gull + Bestur + Markakóngur + Stoðseningahæstur EM 2026: Gull + Bestur + Markakóngur EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira
Þetta var fimmta stórmótið í röð þar sem Gidsel er markakóngur, þriðja stórmótið í röð þar sem hann er valinn mikilvægasti leikmaðurinn og áttunda stórmótið í röð þar sem hann er annaðhvort valinn besti leikmaður mótsins eða besta hægri skyttan. Danir hafa unnið fjögur stórmót í röð og eru nú handhafar allra þriggja stóru titlanna. Gidsel er líka handhafi allra stóru verðlaunanna frá þessum mótum, markakóngstitilsions og besti maður mótsins. Gidsel skoraði 68 mörk á nýloknu Evrópumóti sem var nýtt markamet á einu EM. Hann varð einnig í öðru sæti í stoðsendingum á eftir Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. Gidsel gaf 56 stoðsendingar sem þýddi að hann kom alls að 124 mörkum í níu leikjum á mótinu. Það gera 13,8 mörk í leik og meira en á HM í fyrra þegar hann kom alls að 119 mörkum eða 13,3 að meðaltali í leik. Gísli sá þó til þess að Gidsel náði ekki að verða stoðsendingahæstur á þriðja stórmótinu í röð. Gidsel hefur alls tekið þátt í átta stórmótum með danska landsliðinu og unnið verðlaun á þeim öllum, fimm gull, tvö silfur og eitt brons. Hann hefur alls skorað 441 mark í 67 leikjum og gefið 313 stoðsendingar. Það gera 754 sköpuð mörk á stóra sviðinu. Það magnaða við þessa tölfræði er að Gidsel hefur aðeins skotið 580 sinnum á markið og hann tekur ekki vítaskot. Hann er að spila fyrir utan en er samt með 76 prósent skotnýtingu i þessum 67 leikjum. Gidsel hefur fimm sinnum verið kosinn besti leikmaðurinn og hann hefur fimm sinnum verið markakóngur. Það ótrúlegasta við þetta allt saman er að Gidsel er að ná þessu öllu fyrir 27 ára afmælið sitt sem er 8. febrúar næstkomandi. Hans bestu ár sem handboltamaður ættu því að vera eftir enda hefur hann komið að fleiri mörkum á hverju móti síðustu þrjú mót og er því enn að bæta sinn leik. Átta stórmót Mathias Gidsel: HM 2021: Gull + úrvalslið ÓL 2021: Silfur + Bestur EM 2022: Brons + Úrvalslið HM 2023: Gull + Bestur + Markakóngur EM 2024: Silfur + Úrvalslið + Markakóngur ÓL 2024: Gull + Bestur + Markakóngur + Stoðseningahæstur HM 2025: Gull + Bestur + Markakóngur + Stoðseningahæstur EM 2026: Gull + Bestur + Markakóngur
Átta stórmót Mathias Gidsel: HM 2021: Gull + úrvalslið ÓL 2021: Silfur + Bestur EM 2022: Brons + Úrvalslið HM 2023: Gull + Bestur + Markakóngur EM 2024: Silfur + Úrvalslið + Markakóngur ÓL 2024: Gull + Bestur + Markakóngur + Stoðseningahæstur HM 2025: Gull + Bestur + Markakóngur + Stoðseningahæstur EM 2026: Gull + Bestur + Markakóngur
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Finnur til með Arnari Handbolti Sindri áfram í sextán liða úrslit Körfubolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira