Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Magnús Jochum Pálsson skrifar 5. febrúar 2026 13:59 Viðar Örn gekk til liðs við KA þegar hann sneri heim frá atvinnumennsku 2024 en samningur hans við liðið rann út á síðasta tímabili. Mynd/KA Knattspyrnumaðurinn Viðar Örn Kjartansson hóf störf á Sólheimum í Grímsnesi í síðustu viku. Hann nýtur starfsins og á von á því að næsta skref á knattspyrnuferlinum skýrist fljótlega. „
Ég byrjaði í síðustu viku og verð þarna einu sinni í viku. Þetta er ótrúlega gaman og mér líður vel,“ sagði Viðar um nýju vinnuna í Grímsnesinu í samtali við blaðamann. „Ég ætlaði að finna mér eitthvað að gera, prófa eitthvað annað en það sem maður hefur verið í og þetta lá vel við.“ Það hefur verið beðið fregna af næsta skrefi á knattspyrnuferlinum hjá þér. Er eitthvað að frétt þar? „Það er ýmislegt að frétta og ég vænti þess að það verði klárað á næstunni. Ég er búinn að vera að æfa á fullu og get ekki beðið eftir að fá að spila. Ég vona að það verði klárað í febrúar,“ sagði Viðar sem var síðast á mála hjá KA. Viðar hefur verið sterklega orðaður við endurkomu í uppeldisfélagið Selfoss. Fyrst hann er kominn til starfa á Sólheimum er stutt á milli Grímsnessins og Árborgar. Leitaði sér hjálpar eftir að hann kom heim Viðar er einn víðförlasti atvinnumaður Íslands og hefur spilað með tíu ólíkum liðum í átta mismunandi löndum: Vålerenga í Noregi, Jiangsu Sainty í Kína, Malmö og Hammarby í Svíþjóð, Maccabi Tel Aviv í Ísrael, Rostov og Rubin Kazan í Rússlandi, Yeni Malatyaspor í Tyrklandi, Atromitos í Grikklandi og CSKA 1948 í Búlgaríu. Hann sneri aftur til Íslands árið 2024 og gekk þá til liðs við KA á Akureyri þar sem hann lék tvö sumur. Fyrr á þessu ári opnaði Viðar sig síðan um baráttu sína við áfengis- og spilafíkn í ítarlegu viðtali við Fótbolta.net. Lýsti hann því að vandræði sín hefðu ágerst hratt í kringum Covid-faraldurinn þegar fjölskylda hans flutti heim til Íslands á meðan hann hélt áfram að spila fótbolta erlendis. Hann hefði þá orðið einmana og byrjaði að drekka meira og veðja, sem hefði síðan undið upp á sig. „Ég var orðinn einn úti, lífið varð minna spennandi og það þróaðist út í gambla og meiri drykkju. Ég missti svolítið stjórnina á tilverunni,“ sagði Viðar í viðtalinu. Eftir á að hyggja sæi hann eftir því að hafa ekki komið fyrr heim til Íslands og leitað sér aðstoðar. Þegar hann flutti svo til landsins 2024 hefði hann tekið sinn „kafla í skemmtanalífinu“ og misstígið sig inn á milli. Um mitt tímabil 2024 hefði hann þó tekið sig saman, kynnst stelpu og viljað standa sig. Viðar leitaði sér svo aðstoðar á síðasta ári, þegar hann byrjaði að sækja fundi fyrir spilafíkla og lagðist inn á Vog í áfengismeðferð eftir að tíma hans hjá KA lauk um haustið. „Punkturinn yfir i-ið var að fara í meðferðina. Ég fór á Vog og fannst frábært að hafa gert það. Ég stunda AA-fundi, hef farið á fundi vegna spilafíknarinnar og er reglulega hjá sálfræðingi. Svo taka við tólf sporin, þetta tengist allt. Ég er orðinn mjög meðvitaður um þetta allt saman, meðferðin var svolítið til að loka hringnum og nú held ég áfram á fundum tvisvar-þrisvar sinnum í viku. Það heldur manni við efnið,“ sagði Viðar. Hann eignaðist barn með kærustu sinni, Sylvíu Rós Arnarsdóttur, í október skömmu áður en hann fór í meðferð og segir fjölskyldu sína hafa veitt sér mikinn stuðning.
Vistaskipti Besta deild karla KA Grímsnes- og Grafningshreppur Sólheimar í Grímsnesi Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Fleiri fréttir Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Sjá meira