Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Aron Guðmundsson skrifar 6. febrúar 2026 07:33 Baldur Fritz Bjarnason hefur slegið í gegn í Olís deildinni með liði ÍR og raðað inn mörkum. Hann hefur þurft að bíða með atvinnumannadrauminn til þessa en nú er fyrsta skrefið á þeim ferli ákveðið. Vísir/Anton Brink Baldur Fritz, einn mest spennandi handboltamaður Íslands um þessar mundir og markakóngur síðasta tímabils í efstu deild hér heima, er á leið út í atvinnumennskuna eftir yfirstandandi tímabil. Draumur að rætast sem Baldur þurfti að bíða með þar til að hann útskrifaðist úr Verzlunaskóla Íslands.
Hinn nítján ára Baldur er markahæsti leikmaður Olís deildarinnar um þessar mundir með 143 mörk í sextán leikjum og það þrátt fyrir að lið hans ÍR vermi botnsæti deildarinnar. Eftir tímabilið heldur hann út í atvinnumennskuna til Svíþjóðar þar sem hann hefur samið við topplið Kristianstad til næstu tveggja ára. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu og er búinn að vinna hart að þessu í langan tíma. Þetta er klárlega mikilvægt og rétt skref fyrir mig á þessum tíma ferilsins,“ segir Baldur í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Þetta er náttúrulega risastór klúbbur í Svíþjóð, þeir eru að berjast í Evrópukeppni svo fíla ég hvernig þeir vilja vinna með ungum leikmönnum, þeir vilja gefa þeim tækifæri, gera þá góða og svo er aðstaðan þarna í heimsklassa.“ Reynst Íslendingum vel Það skildi engan undra að fleiri lið hafi verið á höttunum eftir Baldri en í hans huga var Kristianstad, sem vermir toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir, alltaf fyrsti kostur. Á sama tíma samdi Eyjamaðurinn Andri Erlingsson við félagið og fyrir er þar Einar Bragi Aðalsteinsson sem gekk í raðir Kristianstad frá FH árið 2024. Andri og Baldur hafa spilað saman í yngri landsliðum Íslands og taka nú báðir skrefið út í atvinnumennskuna. Hér er Andri í landsleik gegn Spánverjum. IHF Þá er saga Íslendinga hjá félaginu rík, landsliðsmenn á borð við Teit Örn Einarsson, Arnar Frey Arnarsson og Ólafur Guðmundsson hafa verið á mála hjá Kristianstad og í kjölfarið tekið skrefið í stærri deildir í Evrópu. „Strákarnir sem hafa verið þarna hjá Kristianstad áður hafa komið mjög vel út úr þessu. Þeir hafa verið að standa sig vel þarna og lítur út fyrir að skref þeirra til Kristianstad á sínum tíma hafi reynst mjög vel fyrir þá.“ „Fyrst og fremst held ég að það sé ótrúlega mikilvægt fyrir mig að fara núna út. Sérstaklega því þá get ég bara einbeitt mér að því að vera handboltamaður, líf mitt snýst þá bara um að verða eins góður og ég get verið í handbolta í staðin fyrir að vera í skóla eða annarri vinnu með. Ég ætla vera með fulla einbeitingu á þessu næstu tvö ár, einbeita mér hundrað prósent að Kristianstad, gera eins vel og ég get, verða eins góður og ég get.“ ÍR er í harðri baráttu um að halda sæti sínu í efstu deild og er búið að tryggja sér sæti í úrslitahelgi bikarkeppninnar og njóta krafta Baldurs þar. Strákurinn ungi einsetti sér á sínum tíma að klára framhaldsskólagöngu sína í Verzlunarskóla Íslands áður en atvinnumannaferillinn tæki við. Er þetta að ganga eftir? Ertu að fara ná öllum prófum og útskrifast? „Já það er engin hætta á ferðum þar. Þetta mun klárast í maí, ég er pottþéttur á því að ég muni ná þessu.“
Sænski handboltinn Olís-deild karla Handbolti ÍR Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Sjá meira