Erlent

Segir 55 þúsund her­menn fallna en margra sé saknað

Samúel Karl Ólason skrifar
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu.
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu. AP/Sergei Grits

Að minnsta kosti 55 þúsund úkraínskir hermenn hafa fallið í átökum við Rússa, samkvæmt Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Átökin hafa staðið yfir í tæp fjögur ár en Selenskí segir að margra til viðbótar sé saknað. Fjöldi fallinna hermanna er líklegal mun hærri, eins og forsetinn viðurkenndi sjálfur.

Selenskí nefndi þessa tölu í viðtali við franskan fjölmiðil í gær. Eins og fram kemur í frétt BBC sagði forsetinn síðast frá mannfalli meðal úkraínskra hermanna í desember 2024 og var fjöldinn þá 43 þúsund.

Tölur um mannfall í átökunum hafa ávallt verið á miklu reiki og tölur sem bæði Úkraínumenn og Rússar gefa upp um mannfall hjá hvorum öðrum þykja ekki áreiðanlegar.

Sérfræðingar bandarísku hugveitunnar Center for stategic and international studies gáfu í janúar út greiningu þar sem farið var í saumana á mannfalli í stríðinu í Úkraínu. Þar kom fram að nærri því 1,2 milljónir rússneskra hermanna hefðu særst eða fallið. Um 325 þúsund voru taldir hafa fallið.

Hvað varðar Úkraínumenn áætla sérfræðingar CSIS að á milli hundrað og 140 þúsund Úkraínumenn séu fallnir. Í heildina hefðu tæplega sex hundruð þúsund hermenn særst eða fallið.

Sjá einnig: Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir

Fyrir um hálfu ári var áætlað innan innanríkisráðuneytis Úkraínu að rúmlega sjötíu þúsund manna væri saknað. Sé tölunni sem Selenskí nefndi í áðurnefndu viðtali bætt við stemmir það nokkuð við greiningu CSIS.

Erfiðar viðræður

Selenskí talaði einnig um viðræður við Rússa sem hafa átt sér stað í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þar var komist að samkomulagi í dag um skipti á 314 stríðsföngum en það voru fyrstu slíku skiptin í fimm mánuði.

Selenskí hefur sagt viðræðurnar erfiðar en uppbyggilegar og hefur hann kallað eftir meiri hraða.

Rússar hafa lagt áherslu á að úkraínskir hermenn hörfi frá stórum hluta Dónetsk-héraðs sem þeir halda enn. Svæðið þykir mjög víggirt en Pokrovsk og aðrar borgir eru á því.

Úkraínumenn vilja ekki láta þetta svæði af hendi og segja að með því gætu Rússar öðlast skotpall lengra inn í Úkraínu.


Tengdar fréttir

Rússar gera árásir á orkuinnviði í Úkraínu

Rússar gerðu árásir á orkuinnviði og íbúðarhúsnæði í Úkraínu í nótt. Fjórir særðust í árásunum, bæði í Kænugarði og Kharkív. Að sögn vitna mátti heyra háværar sprengingar og þá kviknuðu eldar. Skemmdir urðu á innviðum á fimm svæðum, meðal annars á byggingu þar sem rekinn er leikskóli. 

Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði heitið því að gera tímabundið hlé á loftárásum sínum á Kænugarð, sem hafa miðað að því að valda skemmdum á orkuinnviðum og svipta íbúa hlýju í vetrarkuldanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×