„Vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. febrúar 2026 11:02 Skíðastökkvarar eru sakaðir um að hafa stækkað typpin til að fá stærri búning og ná þannig betra svifi í skíðastökkinu. Alex Slitz/Getty Images Skíðastökkvarar á Vetrarólympíuleikunum harðneita því að hafa sprautað sig með reðurstækkandi efnum og vilja fjarlægja sig frá fréttaflutningi um málið. Skíðastökkið sem íþrótt hafi ekki efni á öðrum skandal.
Þýski miðillinn Bild greindi fyrst frá því að skíðastökkvarar væru að sprauta hýalúronsýru í göndulinn til að stækka hann, með það í huga að mega þá klæðast örlítið stærri keppnisbúningi sem myndi gera þeim kleift að svífa lengra. Málið hefur vakið heimsathygli og verið fjallað um á BBC, Sky Sports og New York Times til dæmis. Noregur er sigursælasta þjóð sögunnar í skíðastökkinu og norski ríkismiðillinn NRK leitaði viðbragða hjá öllum helstu sérfræðingum íþróttarinnar. Þeir eiga það sameiginlegt að finnast fregnirnar ótrúlegar og þvertaka fyrir það að hafa notað typpasýruna sjálfir eða þekkja einhvern sem hefur gert það. „Þetta er ekki góðs viti fyrir íþróttina, alls ekki“ sagði Johan Remen Evensen, fyrrum heimsmeistari í skíðastökki. „Mikil umræða hefur skapast undanfarið um búninga og svoleiðis hluti, þannig að það þetta kemur því miður ekki á óvart. En þetta er bara orðrómur og ég trúi því og vona að við getum haldið Ólympíuleika sem snúast ekki um typpi“ sagði Evensen einnig. Þetta er í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem búningamál skíðastökksins eru í deiglunni. Á síðustu Vetrarólympíuleikum, í Peking 2022, voru fimm konur frá fjórum þjóðum dæmdar úr leik fyrir að hafa átt við búningana með ólöglegum hætti. Saumaskandallinn þá var síðan toppaður á heimsmeistaramótinu í fyrra, þegar fimm norskir keppendur auk þjálfara þeirra voru dæmdir í keppnisbann fyrir að eiga við búninga. „Það er sorglegt að við þurfum skandala svo fólki finnist íþróttin okkar áhugaverð eða spennandi“ sagði skíðastökkvarinn Anna Odine Stroem við BBC.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Tarik framlengir við Víking Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Leikmaður ársins missir af landsleikjum Áföllin halda áfram að dynja á Russell Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Rahm segist vilja rifta við LIV Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Sérfræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Arteta framlengir við Arsenal Fékk „brjálæðislegt“ magn rasískra skilaboða eftir umdeilt atvik Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Mun ekki stíga aftur á völlinn það sem eftir er tímabilsins Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Sjá meira