Lindsey Vonn úr leik eftir hrikalegt fall í fyrstu ferð Ágúst Orri Arnarson skrifar 8. febrúar 2026 11:25 Lindsey Vonn lauk keppni með versta hætti. Daniel Kopatsch/VOIGT/GettyImages Skíðadrottningin Lindsey Vonn upplifði brostna drauma í fyrstu ferð á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Hún lagði af stað með slitið krossband og féll í fyrstu ferð með hrikalegum afleiðingum.
Hin 41 árs gamla Vonn ögraði örlögunum með því að keppa á Vetrarólympíuleikunum aðeins níu dögum eftir að hafa slitið krossband. Slík meiðsli halda íþróttafólki vanalega frá keppni í 9-12 mánuði en Vonn setti á sig hnébeisli og lét þau ekki stoppa sig frá keppni á, að öllum líkindum, síðustu leikunum á ferlinum. Vonn var vongóð eftir æfingar í Ólympíubrautinni í Cortina, þar sem hún stóð sig með prýði. Illa fór hins vegar í fyrstu ferð. Vonn missti stjórn á sér og festi höndina í flagginu þegar hún þaut framhjá á yfir hundrað kílómetra hraða, með þeim afleiðingum að hún tók á loft. Vonn snerist í loftinu og féll harkalega til jarðar. Hún festist í skíðunum í mjög óþægilegri V-stellingu og lá hreyfingarlaus í brekkunni. Það tók síðan rúmlega tíu mínútur að losa hana úr skíðunum og flytja hana burt úr brekkunni með sjúkraþyrlu. Dauðaþögn sló meðal áhorfenda á svæðinu en þögnin var rofin með öskrum hinnar sárkvöld Vonn. Skelfileg sjón fyrir alla viðstadda og áhorfendur í sjónvarpi. Lindsey Vonn var flutt burt með sjúkraþyrlu. Al Bello/Getty Images „Ég vil ekki trúa því að þetta endi með þessum hætti, hreyfingarlaus og sárkvalin í brekkunni. Þetta er átakanlegt, þetta er grimmt. Hugsið ykkur hvað fjölskyldan hennar, liðið hennar og hún er að ganga í gegnum. Við verðum að vera raunsæ. Áhættan var mjög mikil, áhættan magnast þegar hún dettur, líkaminn hennar höndlar þetta ekki. Þau klappa núna og vona að það verði í lagi með hana, en það er líka búið að kveikja á háværri tónlist því þetta er svo óþægilegt“ sagði Chemmy Alcott, fjórfaldur Ólympíufari og fyrrum keppinautur Lindsey Vonn, í lýsingu BBC þegar Vonn var flutt burt.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira