Minningarleikur um strákinn sem lést í bílslysi á Miklubraut: „Fyllum höllina - fyrir Patta“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 16:52 Patrekur Freyr Sveinsson var aðeins sautján ára gamall en hann var liðsmaður í U18 liði SR. @srishokki Skautafélag Reykjavíkur og Fjölnir hafa tekið höndum saman til að minnast íshokkístráksins Patreks Freys Sveinssonar sem lést í hræðilegu bílslysi í síðustu viku en Patti æfði og keppti lengi með Fjölni áður en hann gekk til liðs við SR.
Hinn sautján ára gamli Patrekur Freyr Sveinsson lést í slysinu en hann var farþegi í bílnum sem hafnaði á stólpa Vegagerðarinnar til móts við hús Hjálpræðishersins. Slysið varð rétt eftir klukkan ellefu um kvöldið en ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert. Fyrirhugaður leikur karlaliða SR og Fjölnis í Egilshöll næsta þriðjudag verður nú spilaður á heimavelli Patta í Laugardalnum klukkan 19:45. Reykjavíkurliðin tvö hafa ákveðið að allur ágóði af miðasölu þessa leiks renni óskiptur til fjölskyldu hans, svo hún þurfi, í sinni ólýsanlegu sorg, að hafa minni áhyggjur af kostnaði vegna andláts sonar síns. Foreldrafélag SR ætlar að leggja málefninu lið og gefur allan ágóða af veitingasölu á leiknum. Einnig verður glæsilegur kökubasar á leiknum þar sem hægt verður að kaupa bakkelsi til styrktar fjölskyldunni. Hér fyrir neðan má sjá styrktarreikning þeirra sem er opinn fyrir frjálsum framlögum. Margt smátt gerir eitt stórt. 0511-14-077086, kt. 150886-3419 „Þrátt fyrir að við séum harmi slegin og hjörtu okkar allra brostin vegna fráfalls Patreks þá erum við ákveðin í því að halda minningu hans á lofti,“ segir á samfélagsmiðlum Skautafélags Reykjavíkur. Þar kemur fram að íshokkísamfélagið á Íslandi sé ekki fjölmennt en það er þétt og á stundum sem þessum standa þau saman öll sem eitt. „Patrekur eða Patti, eins og hann var jafnan kallaður, var hvers manns hugljúfi; frábær vinur og góður liðsfélagi. Hann hafði mikinn metnað fyrir íshokkííþróttinni og stefndi heilshugar að því að verða valinn í landslið Íslands. Með sínum einstaka karakter og ljúfmennsku snerti hann hjörtu okkar allra. Hans er og verður sárt saknað en minning hans mun lifa í hjörtum SR-fjölskyldunnar um ókomna tíð. Hann var einn af okkur,“ segir á miðlum SR. „Hugur allra, þar á meðal okkar á Vísi, er hjá fjölskyldu Patta, Ásgerði, Svenna, Kristófer Mána og Ronju Líf, á þessum erfiðu tímum. Við vottum fjölskyldunni okkar dýpstu samúð,“ segir á miðlum SR. View this post on Instagram A post shared by SR Íshokkí (@srishokki)
Íshokkí Banaslys á Miklubraut 2026 Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Landa Arsenal þeim stóra? Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Sjá meira