Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 21:30 Orri Steinn Óskarsson setur hendina upp að eyranum á meðan stuðningsmenn Real Sociedad syngja um hann. Getty/Juan Manuel Serrano Arce Orri Steinn Óskarsson innsiglaði 3-1 sigur Real Sociedad á Elche í spænsku deildinni þegar hann skoraði þriðja markið nokkrum mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Íslenski landsliðsfyrirliðinn er að komast aftur af stað eftir fjögurra mánaða meiðsli og var að skora í öðrum leiknum í röð eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Í leiknum á undan tryggði hann liðinu sæti í undanúrslitum spænska bikarsins. Það var á útivelli en nú var Estadio Municipal de Anoeta fullur af stuðningsmönnum Real Sociedad þegar íslenski framherjinn skoraði. Það var í raun allt vitlaust í stúkunni eftir markið hans Orra eins og sjá má hér fyrir neðan. „Eftir mark [Orra] Óskarssonar sem tryggði Real sigur á Elche tók Anoeta-leikvangurinn lagið af fullum krafti, smellinn sem hefur farið sem eldur í sinu undanfarna daga og fær fólk til að dreyma um að keppa til úrslita í bikarnum í Sevilla,“ skrifaði blaðamaður El Diario Vasco. „Por la mañana café. Por la tarde ron. Llévame a Sevilla. Orri Óskarsson,“ eða á íslensku: „Kaffi á morgnana, romm á kvöldin, farðu með mig til Sevilla, Orri Óskarsson,“ var sungið í stúkunni. Ron og son rímar þarna hjá Böskunum. Real Sociedad mætir Athletic Bilbao í tveimur undanúrslitaleikjum í bikarnum og sigurvegarinn samanlagt úr þessum tveimur leikjum mætir annaðhvort Barcelona eða Atlético Madrid í úrslitaleiknunm. Fyrri leikur Real Sociedad og Bilbao er á fimmtudagskvöldið. View this post on Instagram A post shared by El Diario Vasco (@diariovasco)
Spænski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sjá meira